ÍBV vann Val í æfingaleik
Eyjamenn fagna á síðasta tímabili. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í fótbolta lagði Val að velli fyrr í dag í æfingaleik í Egilshöll. Leiknum lauk með 2-1 sigri ÍBV. Valur leiddi með einu marki í hálfleik með marki frá Degi Erni Garðarssyni. Eyjamenn skoruðu tvö mörk í síðari hálfleik. Mörk ÍBV skoruðu Bjarki Björn Gunnarsson og Mathias Edeland. 

Stutt er í að Besta deild karla hefjist. Deildin sjálf hefst föstudaginn 10. apríl með leik Íslandsmeistara Víkings Reykjavík og Breiðabliks en Eyjamenn taka á móti FH á Hásteinsvelli sunnudaginn 12. apríl í fyrsta leik sínum. 

Tímabilið hjá ÍBV hefst hins vegar 4. apríl í Mjólkurbikarnum og fengu Eyjamenn heimaleik gegn annað hvort Þrótti Reykjavík eða Víkingi Ólafsvík. Leikur Þróttar og Víkings Ólafsvík fer fram á laugardaginn kl. 14:00. 

Fyrstu fimm leikir ÍBV í Bestu deildinni: 

Sunnudaginn 12. Apríl     –   ÍBV – FH

Föstudaginn 17. Apríl    –     Valur – ÍBV

Miðvikudaginn 22. Apríl   –  ÍBV – KR

Mánudaginn 27. Apríl    –     Fram – ÍBV

Sunnudaginn 3. Maí      –     ÍBV – Breiðablik

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.