Herjólfur breytir áætlun á morgun
Herjólfur kemur til Eyja í brælu. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vegna slæmrar veðurspár á morgun hefur Herjólfur ohf. ákveðið að breyta siglingaáætlun sinni. Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun þar sem búast má við hvössum suðaustanáttum, mikilli úrkomu og erfiðum akstursskilyrðum.

Veðurstofa Íslands spáir suðaustan 20–28 m/s með vindhviðum staðbundið yfir 40 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu eða slyddu, slæmu skyggni og versnandi færð.

Breytt áætlun Herjólfs: Frá Vestmannaeyjum: kl. 09:00 (í stað 07:00) og kl. 16:00.  Frá Þorlákshöfn: kl. 12:00 (í stað 10:45) og kl. 19:45.

Fram kemur í tilkynningu frá Herjólfi ohf. að ef frekari breytingar verða á áætlun muni þær verða tilkynntar í fyrramálið.

Lokanir á vegum

Vegagerðin hefur einnig tilkynnt að bæði Hellisheiði og Þrengslin verði lokuð frá kl. 04:00 í nótt. Áætlað er að opna leiðirnar aftur um kl. 14:00, er bent á í tilkynningu skipafélagsins.

Nýjustu fréttir

Kristín skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Opinn fundur um þjóðaratkvæðagreiðsluna
ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.