Á fjölmennum fundi í Höllinni í síðustu viku, þar sem blásið var til sóknar gegn fyrningarleið í sjávarútvegi, útflutningsálagi á ísfisk, afnámi sjómannaafsláttar og aðför að landsbyggðinni, komu fram athyglisverðar tölulegar upplýsingar um hversu miklir hagmunir eru í húfi fyrir Vestmannaeyjar þegar breytingar eru gerðar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Getur það skipt hundruðum milljóna þó aðgerðirnar láti ekki mikið yfir sér.