Sjávarútvegssýning í september
Sjávarútvegssýning 2019
Frá sjávarútvegssýningunni. Ljósmynd/aðsend.

Sýn­ing­in Sjáv­ar­út­veg­ur 2025 / Ice­land Fis­hing Expo verður hald­in í fjórða sinn 10.–12. sept­em­ber í Laug­ar­dals­höll en það er sýn­ing­ar­fyr­ir­tækið Rit­sýn sem stend­ur að sýn­ing­unni. Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu sem Rit­sýn sendi frá sér að sýn­ing­in verði sú stærsta til þessa en sýn­ing­ar­hald­ar­ar finna þegar fyr­ir mikl­um áhuga, bæði hér á landi og er­lend­is frá.

Ólafur M. Jóhannesson er framkvæmdastjóri sýningarinnar. „Sýningin stækkar með hverju árinu of fyllir nú öll sýningarsvæði Laugardalshallar. Sýningin er að þessu sinni afar fjölbreytt og áhugaverð.  Á sýningunni eru allar tegundir af fyrirtækjum er þjóna íslenskum sjávarútvegi. Gestir koma til með að sjá allt það nýjasta í hátækniútbúnaði er tengist fiskvinnslu og útgerð. Þá er mikið af nýjum fyrirtækjum að koma inn  með sýningarbása og  ber meðal annars að nefna fyrirtæki sem þjóna fiskeldinu bæði á sjó og landi.

Sýningin hefur einnig verið afar ánægjulegur mótstaður þeirra er koma að eða hafa áhuga. Á síðustu sýningu 2022 komu um fjörutíu þúsund gestir alls staðar að af landinu. Við búumst líka við miklum fjölda í ár og einnig finnum við fyrir auknum áhuga erlendra aðila víða um heim,“ segir Ólafur.

Sjávarútvegssýningin er opin frá kl. 14 til 19 á miðvikudag 10. september og frá kl. 10-18 á fimmtudag og föstudag 11. og 12. september. Nán­ari upp­lýs­ing­ar er að finna á heimasíðu sýn­ing­ar­inn­ar.

Nýjustu fréttir

Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Göngustígur kominn að Sjónarhorni Flakkarans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.