�?ar sem hjartað slær
25. febrúar, 2017
Aðalfundurinn
ÍBV íþróttafélag hélt aðalfund sinn fyrir árið 2011 um miðjan apríl 2012. �?að sem helst bar til tíðinda var mikill viðsnúningur í rekstri félagsins. Félagið tapaði 19.4 milljónum árið 2011 en hagnaðist um 34,8 milljónir árið 2010. Er þetta viðsnúningur uppá 54 milljónir króna. Skuldir félagsins námu í árslok 2011 136,2 milljónum.
Ný stúka
Veturinn og sumarið 2012 var unnið að byggingu nýrrar áhorfendastúku á Hásteinsvelli á vegum ÍBV íþróttafélags. Stúkan var í fyrsta skiptið notuð í bikarleiknum gegn KR sunnudaginn 8. júlí og var þétt setin.
Jónas Sigurðsson skrifaði í Eyjafréttir, skemmtileg grein um fyrstu notkun á stúkunni og þá hópa sem hafa verið fastheldnir á sín stæði á Hásteinsvelli.
Stúkan. Fólk var svolítið feimið og vissi ekki alveg hvar það átti að setjast, einhver spurði hvar er Hóllinn? Einn mætti í KR-búningi, það settist enginn í sömu sætaröð, enginn í röðina fyrir aftan eða framan. Hugrakkur KR-ingur. En smátt og smátt þéttist í stúkunni og nánast setið í hverju sæti þegar leikurinn hófst. �?að var góð stemning og ágætis kór sem lét heyra vel í sér þegar dómarinn flautaði leikinn á.
Snautlegra líf
Páll Magnússon alþingismaður ritaði grein í Eyjafréttir um mitt sumar 2012. Í niðurlagi greinar sinnar skrifar hann: �??Fyrir utan beinan og óbeinan fjárhagslegan ávinning, sem allt samfélagið hefur af starfi ÍBV, hefur svo til hver einasta fjölskylda hér í Eyjum nánast daglegan snertiflöt við félagið í gegnum íþrótta- og æskulýðsstarf fyrir börn og unglinga. �?annig skipar ÍBV afar stóran sess í öllu daglegu lífi okkar Eyjamanna og Eyjólfur á Gullberginu hitti naglann nákvæmlega á hausinn þegar hann sagði í viðtali við Moggann �??…lífið væri snautlegt í Eyjum án ÍBV�??.
Hálftími í brekkusönginn
Einn af hápunktum þjóðhátíða er brekkusöngurinn. Árið 2012 sáu Jarl Sigurgeirsson og Sæþór vídó um hann. Allt nema þjóðsönginn, þar var komið að þætti Árna Johnsen sem átti að enda með þjóðsöngnum, Íslands þúsund ár, en það dugði Árna ekki. Hann kom því skilmerkilega á framfæri að hann væri hin eina sanna rödd Brekkusöngsins sem hann byrjaði með 1977. �?etta margítrekaði hann og til að undirstrika það söng hann í rúman hálftíma og var klukkan komin fram yfir hálf eitt þegar kom að þjóðsöngnum.
Íþróttaakademían
Íþróttaakademíur ÍBV og Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum (FÍV) annars vegar og Grunnskóla Vestmannaeyja (GRV) héldu sínu striki árið 2012 en alls voru 66 ungmenni sem æfðu handbolta og fótbolta á þeirra vegum eldsnemma á morgnana. �?jálfarar voru þeir Erlingur Birgir Richardsson, sem sá um handboltann og styrktarþjálfun og Ian Jeffs, sem sá um fótboltann. Erlingur hafði yfirumsjón með starfsemi akademíunnar en hann sagði að skipting nemenda hafi verið nokkuð jöfn. �??�?að er nokkuð jöfn skipting á milli FÍV og GRV og sömuleiðis á milli fótbolta og handbolta. �?að eru tveir á framhaldsskólaaldri sem flakka á milli beggja greinanna og eru þá á einni æfingu í fótbolta og einni í handbolta, í stað þess að vera á tveimur æfingum í sömu greininni.�??
Silfurstelpurnar okkar
Kvennalið ÍBV í knattspyrnu sló heldur betur í gegn á lokakafla Íslandsmótsins 2012. Eftir niðurlægjandi tap gegn FH á Hásteinsvelli, brettu stelpurnar upp ermarnar og töpuðu ekki leik í síðustu sjö umferðunum. Og þegar upp var staðið, þá náði ÍBV 2. sætinu í Pepsídeildinni, sem er jöfnun á besta árangri kvennaliðs ÍBV í efstu deild. Sannarlega glæsilegur árangur hjá Jóni �?lafi Daníelssyni, þjálfara ÍBV og lærimeyjum hans.
Styrkur frá UEFA
ÍBV, líkt og áður fékk sinn hlut af greiðslu UEFA til KSÍ vegna ágóða af meistaradeild Evrópu 2011-2012. Féð var eyrnamerkt barna- og unglingastarfi en hlutur ÍBV var 3.620.000 kr. Alls fengu íslensk félög 43 milljónir, sem skiptust milli félaga í efstu deild karla. �?ví til viðbótar ákvað KSÍ að reiða fram 40 milljónir sem skiptust milli liða í öðrum deildum Íslandsmótsins. Eitt af skilyrðum var að félögin haldi úti yngri flokkum beggja kynja.
Nýr framkvæmdastjóri
Um miðjan janúar 2013 lét Tryggvi Már Sæmundsson af störfum sem framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags. Nýr framkvæmdastjóri er Dóra Björk Gunnarsdóttir. Hún er kennaramenntuð og hefur starfað við Grunnskóla Vestmannaeyja.
Páll Scheving hættir í stjórn ÍBV og �?jóðhátíðarnefnd
Páll sat í �?jóðhátíðarnefnd í tólf ár, þar af tíu ár í röð og formaður í fjögur ár. �?jóðhátíðin tók miklum breytingum á þessum árum og margt gert í framfaraátt. Hátíðin var aðlöguð breyttum tímum og brugðist við auknum kröfum.
�?að blés oft hressilega um þjóðhátíðina þar sem Páll stóð í stafni. Gagnrýnin hefur á stundum verið bæði óvægin og óréttlát en stundum átt rétt á sér. Páll viðurkennir það en benti líka á að besta leiðin til að gera ekki mistök sé að gera ekki neitt.
�?rvalsdeildarsætið í höfn
Karlalið ÍBV í handbolta tryggði sér sæti í úrvalsdeild tímabilið 2012-2013 með glæsilegum sigri á Stjörnunni í Garðabæ. Mest náðu Eyjamenn átta marka forystu í leiknum en óvænt spenna hljóp í leikinn á lokakaflanum þegar Garðbæingar náðu að minnka muninn niður í tvö mörk. En lengra komust þeir ekki og lokatölur urðu 24:27. �?jálfarar liðsins voru Arnar Pétursson og Erlingur Richardsson.
David James semur við ÍBV
Enski landsliðsmarkvörðurinn fyrrverandi, David James, skrifaði undir samning hjá ÍBV vorið 2013. James er án efa þekktasti knattspyrnumaðurinn sem hefur verið á mála hjá íslensku liði og sannkallaður hvalreki fyrir ÍBV og í raun íslenska knattspyrnu. James lék með ÍBV um sumarið og starfaði einnig sem aðstoðarþjálfari við hlið Hermanns Hreiðarssonar. Eins og gefur að skilja vakti koma James til ÍBV verðskuldaða athygli. Enskir fjölmiðlar sýndu málinu mikinn áhuga og var m.a. sagt frá vistaskiptum markvarðarins á vef The Guardian, Sky Sports og BBC.
�?ung undiralda á aðalfundi
Salurinn í Týsheimilinu var þétt setinn á aðalfundi ÍBV-íþróttafélags 17. apríl 2013. Stórkarlalegar yfirlýsingar stjórnarmanna dagana á undan höfðu örugglega átt sinn þátt í áhuga á fundinum. �?að var áfram þungi í mönnum en umræðan var þó vel innan velsæmismarka. �?að sem stóð uppúr var glæsilegur árangur félagsins árið á undan og öflugt starf en dökka hliðin að félagið skuldar of mikið. Um þetta var tekist á fundinum og féllu þung orð, m.a. sagt að þjóðhátíð skilaði ekki því sem gera mætti ráð fyrir miðað við umfang og veltu. �?ví var mótmælt og sýnt fram á að tekjur af þjóðhátíð skipta máli fyrir rekstur félagsins þó alltaf megi deila um hvað sé ásættanlegt og hvað ekki.
Á framhaldsaðalfundi nokkrum dögum síðar var Sigursveinn �?órðarson kjörinn formaður félagsins og með honum í stjórn, Íris Róbertsdóttir, varaformaður, Guðmundur Ásgeirsson, gjaldkeri og Arnar Richardsson, ritari. Aðrir í stjórn eru Páll Magnússon, Stefán Jónsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Styrmir Sigurðarson og Hannes Sigurðsson.
Fyrsti Íslandsmeistaratitill ÍBV í karla handbolta
Tveir flokkar ÍBV í handbolta urðu Íslandsmeistarar 2013, yngra ár 4. flokks drengja og eldra ár 5. flokks kvenna.
�?essi sigur 4. flokks drengja var fyrsti Íslandsmeistaratitill í handbolta í sögu ÍBV íþróttafélags. �?jálfarar drengjaliðsins var Jakob Lárusson en þjálfari stúlknaliðsins var Unnur Sigmarsdóttir.
Skemmtilegur opnunarleikur
�?að var augljóst að mikil eftirvænting ríkti í Vestmannaeyjum þegar blásið var til leiks í opnunarleik Íslandsmótsins í knattspyrnu 2013, sem að þessu sinni fór fram á Hásteinsvelli. �?ar áttust við heimamenn í ÍBV og ÍA en í liði ÍBV var stórstjarnan David James. �?að fór líka ekki á milli mála að stuðningsmenn liðsins vildu berja stórstjörnuna augum, enda voru ríflega eitt þúsund manns á vellinum og fjölmargir voru mættir mjög tímanlega. ÍBV hafði betur í leiknum 1:0 með marki Gunnars Más Guðmundssonar.
Stórveldi á íþróttasviðinu
ÍBV fékk afhentan unglingabikar HSÍ á lokahófi sambandsins 2013, þar sem ÍBV sópaði að sér verðlaunum. Unglingabikar er eftirsóknarverður bikar en hann fær það félag sem að mati HSÍ hefur sinnt unglingastarfi hvað best á tímabilinu. Undir unglingastarfið falla 3. flokkur og yngri iðkendur í karla- og kvennaflokki. ÍBV bætti því enn einni rósinni í hnappagatið og var vel að þessum titli komið.
Heimir
Heimir Hallgrímsson er án efa sá þjálfari sem hefur náð lengst af þeim íþróttaþjálfurum sem Eyjarnar hafa alið af sér. Heimir náði frábærum árangri með karla- og kvennalið ÍBV og ekki síður yngri flokka félagsins. Hann var í kjölfarið ráðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari. Undir stjórn Lars Lagerbäck og Heimis náði íslenska karlalandsliðið sögulegum árangri, þótt sætið á HM hafi runnið úr greipum á lokasprettinum. Heimir var svo ráðinn landsliðsþjálfari.
90 nemendur í Íþróttaakademíunni 2013
Góður rómur hefur verið gerður af starfsemi Íþróttaakademíu ÍBV og Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum og Grunnskóla Vestmannaeyja. Nemendur fá góða kennslu í viðkomandi íþróttagrein, þá er gerð krafa á nemendur beggja akademía um hollt líferni, góða framkomu og námsárangur. Tímabilið 2013-14 voru samtals 90 nemendur í íþróttaakademíu, 39 í FÍV og 51 í GRV.
Ian David Jeffs var skólastjóri en hann var þriðji til að sinna starfinu. Árni Stefánsson byrjaði, Erlingur Richardsson tók við af honum og nú Jeffsy, eins og hann er kallaður.
Baráttan um Íslandsmeistaratitlinn 2014 endaði með sigri ÍBV
�?að varð enginn vonsvikinn af því að hafa fylgt karlaliði ÍBV í handbolta, til Hafnarfjarðar í síðasta leik liðsins í úrslitarimmunni. Verið var að leika hreinan úrslitaleik gegn Haukum og stuðningsmenn ÍBV voru sem fyrr frábærir. Meira en klukkutíma fyrir leik var stúkan orðin full Eyjamegin. �?etta sýndi hug Eyjamanna, – titlinum skyldi landað.
�?rtröð myndaðist þegar byrjað var að selja miða í hópferð á leikinn. Forsalan fór fram í afgreiðslu Herjólfs og biðröðin náði langt út á bryggju.
Fjölmargir Eyjamenn tryggðu sér einnig miða í forsölu Hauka og svo síðar á leikdegi. Enda var það þannig að á leiknum á Ásvöllum voru um 2.500 manns og ekki minna en helmingur voru Eyjamenn. �?rautreyndur Haukamaður sagði að hann hefði aldrei áður séð jafn marga í Íþróttahúsinu, ekki einu sinni þegar Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH mætast. Hann bætti því líka við að hann hefði aldrei áður séð jafn mikla stemningu á handboltaleik á Íslandi og þótti mikið til stuðningsmanna ÍBV koma. Stuðningsmenn ÍBV hafa farið á kostum í úrslitakeppninni, og reyndar fyrir hana líka. Hvítu riddararnir höfðu verið fremstir í flokki, haldið uppi stemningunni og aðrir stuðningsmenn ÍBV ekki látið sitt eftir liggja. Stuðningsmenn ÍBV hafa lyft handboltanum á Íslandi upp á hærri stall í vetur. �?etta eru stór orð en full innistæða fyrir þeim.
Leikurinn sjálfur var nánast sem í blámóðunni fyrir mörgum, þvílík var spennan. Fyrri hálfleikur var jafn, Eyjamenn þó með undirtökin en í síðari hálfleik náðu Haukar fjögurra marka forystu og einhverjir farnir að velta því fyrir sér hvort draumurinn væri úti. �??Fyrir það fyrsta, við erum að spila úrslitaleik strákar mínir. Njótið þess. Smá bros og losum okkur við spennuna,�?? sagði Arnar Pétursson, annar tveggja þjálfara ÍBV í leikhléi sem ÍBV tók um miðjan seinni hálfleikinn þegar staðan var 22:18. Arnar hitti naglann á höfuðið. Leikmenn byrjuðu að spila með gleðina að vopni og það sem fylgdi í kjölfarið fer í sögubækurnar. Peyjarnir okkar söxuðu á forskot Hauka og Theodór Sigurbjörnsson kom ÍBV yfir 23:24 þegar 12 mínútur voru til leiksloka. Lokamínúturnar voru æsispennandi þar sem liðin skiptust á að hafa forystuna. Staðan var jöfn þegar mínúta var eftir. ÍBV fór í sókn, markvörður þeirra varði frá Agnari Smára Jónssyni, sem kastaði sér inn í teig, náði frákastinu og kom boltanum í netið í annarri tilraun. �?vílík tilþrif hjá Agnari Smára, sem skoraði þrettán mörk í leiknum, hvorki meira né minna. Vörn Eyjamanna stóð svo af sér síðustu sókn Hauka og fagnaðarlætin í leikslok voru mögnuð. Leikmenn og forráðamenn féllust tárvotir í faðma með stuðningsmönnum sínum. Fyrsti Íslandsmeistaratitill meistaraflokks karla ÍBV í handbolta staðreynd.
Árangurinn náðist því allir lögðust á eitt, leikmenn, þjálfarar, forráðamenn, stuðningsmenn og fleiri. Að nýliðar ÍBV skuli standa uppi sem sigurvegarar í Íslandsmótinu í fyrsta sinn er ótrúlegt, ekki síst í ljósi þess að fyrir aðeins rúmum tveimur árum var ÍBV næstlélegasta lið landsins. �?essi vegferð hófst ekki í haust, hún hófst fyrir nokkrum árum þegar deildin var í skuldaklafa. Skuldirnar voru greiddar upp og þá hófst uppbyggingin sem fjölmargir komu að. En uppskeran er góð, ÍBV er besta handboltalið landsins.
Heimkoma sem seint gleymist
�??Við komum kl. hálftvö í nótt með Herjólfi og það var full bryggjan af fólki til að taka á móti okkur. �?að var slegið upp flugeldasýningu og fleira til gamans gert. �?á var slegið upp veislu sem stóð fram eftir nóttu. �?að var seint farið að sofa og snemma farið á fætur í morgun þar sem konan mín var að byrja að vinna eftir fæðingarorlof. Sonur minn 10 mánaða hafði engan skilning á að ég var þreyttur í morgun,�?? sagði Gunnar Magnússon, annar þjálfari nýkrýndra Íslandsmeistara ÍBV í handknattleik karla, glaður í bragði.
Íslands- og bikarmeistarar
Eyjamenn eignuðust enn á ný Íslandsmeistara í handbolta þegar 4. flokkur kvenna, yngri, vann Fram í úrslitaleik mótsins í Austurbergi. Lokatölur urðu 20:18 eftir framlengingu en eftir venjulegan leiktíma var staðan 17:17. Eyjaliðið var lengi í gang enda var Fram yfir í hálfleik 11:7. En stelpurnar unnu sig inn í leikinn með mikilli baráttu og eiga hrós skilið fyrir veturinn, enda bæði Íslands- og bikarmeistarar. �?jálfari liðsins var Unnur Sigmarsdóttir.
Loksins kom heimasigur
Gengi karlaliðs ÍBV í knattspyrnu stóð ekki undir væntingum sumarið 2014 en loksins tókst meistaraflokki karla að sigra í heimaleik í Pepsi-deildinni en sigurinn kom á Hásteinsvelli gegn Fjölni í mjög skemmtilegum leik þar sem Eyjamenn stjórnuðu ferðinni, þó aðallega í seinni hálfleik. Eyjamenn höfðu unnið síðustu tvo útileiki áður en kom að þessum en það voru útisigurinn í Keflavík og bikarsigurinn gegn �?rótti. Lokatölur voru 4:2 sem verður að teljast sanngjarnt.
Stærsta þjóðhátíðin
Sumarið 2014 hélt ÍBV íþróttafélag stærstu �?jóðhátíð sína, en tæplega 15 þúsund gesti voru þá í Herjólfsdal. Hún tókst með ágætum. Veður var ágætt alla dagana, sól og blíða á föstudeginum, skúrir á laugardeginum og skýjað og nokkur vindur á sunnudeginum. Dóra Björk Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags sagði m.a. í viðtali við Eyjafréttir: �??�?að var líka gaman að sjá að hvítu tjöldunum er að fjölga, voru núna 326 á móti rúmlega 290 í fyrra.
6. flokkur Íslandsmeistari
Stelpurnar í 6. flokki kvenna hjá ÍBV urðu Íslandsmeistarar í knattspyrnu um mánaðamótin ágúst/september 2014. B- og C-lið flokksins náði einnig mjög góðum árangri, liðin tvö enduðu í þriðja sæti Íslandsmótsins. A-liðið hafði gríðarlega mikla yfirburði í sumar og vann til að mynda sinn riðil með fullt hús stiga og komst því leikandi í úrslitariðilinn sem fram fór nokkrum dögum síðar. �?ar voru stelpurnar alls ekki hættar og ákváðu að vinna alla leikina. �?ær gerðu það svo vel að ekkert annað lið í riðlinum var með jafn gott markahlutfall. Stelpurnar eru vel að titlinum komnar og eiga bjarta framtíð fyrir sér. Athöfn var á bryggjunni við komu Herjólfs en stelpunum sem skiluðu sér til Eyja voru færðir blómvendir.
Evrópukeppni kvennaliðsins
ÍBV stelpurnar okkar héldu út til Ítalíu um miðjan október 2014 til þess að keppa tvo leiki gegn ítölsku liði í forkeppni Evrópudeildar. Fyrir ferðina var ljóst að ítalska liðið var gríðarlega sterkt og með nokkrar reyndar stelpur sem höfðu áður leikið í Meistaradeildinni.
Fyrri leikur liðanna fór fram á föstudegi og var mikið jafnræði á með liðunum. Stúlkurnar okkar voru betri aðilinn í fyrri hálfleik en að honum loknum var staðan 14:14. Í síðari hálfleik fóru stelpurnar illa með færin sín og lokatölur urðu 27:24. �?að var því ljóst að erfitt verkefni beið stelpnanna næsta dag. Mörk ÍBV í fyrri leiknum skoruðu Jóna S. Halldórsdóttir 7, Telma Amado 6, Díana Dögg Magnúsdóttir 4, Vera Lopes 3, Ester �?skarsdóttir 2 og Elín Anna Baldursdóttir 2.
Síðari leikurinn fór, eins og fyrri leikurinn, fram í höll þar sem mikill hiti var og margir stuðningsmenn ítalska liðsins, aðstæður sem stelpurnar þekkja ekki. Í leiknum varð snemma ljóst að þær myndu ekki ná að vinna upp muninn sem hafði myndast eftir fyrri leikinn. Allar stelpurnar fengu því að spila og tapaðist leikurinn með níu marka mun 34:25.
Mörk ÍBV skoruðu Jóna S. Halldórsdóttir 8, Vera Lopes 3, Telma Amado 3, Elín Anna Baldursdóttir 3, Sandra Dís Sigurðardóttir 2, Ester �?skarsdóttir 2, Bergey Alexandersdóttir 1, Sóley Haraldsdóttir 1 og Ásta Björt Júlíusdóttir 1.
Gríðarlegur ferðakostnaður
Ferðakostnaður ÍBV-íþróttafélags fyrir árið 2014 var kr. 56.500.000,-. Eingöngu er um að ræða ferðir í Íslandsmót en ekki í bikarkeppni, æfingaleiki, deildar- og Lengjubikar, Faxaflóamót og fleira. Ferðajöfnunarsjóður kom til móts við þennan kostnað og úr honum komu nálægt kr. 6.000.000- Til þess að standa straum af þessum kostnaði hefur ÍBV notið mikillar góðvildar einstaklinga og fyrirtækja sem og Vestmannaeyjabæjar.
1200 leikir �?? 43 starfsmenn á launaskrá �?? 50% grunnskólabarna æfa íþróttir hjá félaginu
Á viðurkenningahátíð Íþróttabandalagsins ræddi Dóra Björk Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags um félagið og starf þess. Hún sagði að á árinu 2014 hefði ÍBV spilað rúmlega 1200 leiki í Eyjum og félagið var þá sem oftast áður stærsti viðskipavinur Herjólfs í farþegaflutningum. Félagið átti 23 íþróttamenn sem léku fyrir Íslands hönd með landsliðum og þrír þjálfarar félagsins stýrðu landsliðum Íslands og félagið ætti þar að auki handboltaþjálfara eins besta félagsliðs heims. ÍBV íþróttafélag varð Íslandsmeistari í þremur yngri flokkum og bikarmeistari í tveimur. Og Íslandsmeistari í meistaraflokki karla í handbolta. ÍBV íþróttafélag hefði að jafnaði 43 starfsmenn á launaskrá, félagið verslaði við fyrirtæki og stofnanir í Eyjum fyrir rúmar 100 milljónir króna. 50% allra grunnskólabarna stunda íþróttir á vegum félagsins og uppeldismenntað fólk sem sér um kennslu yngstu iðkenda félagsins er 10 talsins. 80 ungmenni stunda nám í Íþróttaakademíunni
Bikarmeistarar – Hafa unnið 17 leiki í röð
Stelpurnar í þriðja flokki ÍBV í handbolta voru ótrúlegar. �?ær töpuðu ekki leik á tímabilinu 2014-15 eftir slakan fyrsta leik gegn Selfyssingum. �?ær mættu þeim einmitt í úrslitum bikarsins. �?rjár stelpur sem spila stórt hlutverk hjá meistaraflokki spila með liðinu. �?ær Erla Rós Sigmarsdóttir, Arna �?yrí �?lafsdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir en þær spiluðu allan leikinn.
Í upphafi leiksins var mikið jafnræði á með liðunum en ÍBV virtist þó alltaf vera einu til tveimur skrefum á undan. Í hálfleik var staðan 12:10 eftir flottan kafla ÍBV undir lok fyrri hálfleiks. Í síðari hálfleik sást vel hvort liðið væri á toppi deildarinnar. Stelpurnar sýndu sínar bestu hliðar en það var þó ein sem stal senunni. Sóley Haraldsdóttir átti frábæran leik og skoraði ellefu mörk. �?egar sóknir stelpnanna virtust vera að renna út í sandinn gat Sóley bjargað málunum. Lokatölur leiksins urðu 24:18 og var Sóley valin kona leiksins.
Bikarinn til Eyja
Karlalið ÍBV í handbolta fékk FH sem mótherja í úrslitaleik bikarkeppninnar 2015 eftir að hafa unnið Hauka í dramatískum leik. – �?að gekk allt upp hjá Eyjamönnum í upphafi og var staðan 6:6 eftir fimmtán mínútna leik. FH-ingar náðu þá góðum kafla, spiluðu ótrúlega vörn og góða sókn, þeir breyttu stöðunni í 6:10 á svipstundu.
�?á hófst frábær kafli Eyjamanna, áður en flautan gall í hálfleik höfðu strákarnir jafnað í 11:11. �?essi kafli hélt áfram í upphafi síðari hálfleiks og var staðan orðin 19:14 áður en síðari hálfleikur var hálfnaður. Kolbeinn Aron Arnarson var í ótrúlegu stuði í leiknum en hann varði alls þrjú vítaköst. Staðan var svo 23:19 þegar einungis sex mínútur voru eftir en þá voru flestir farnir að bóka sigurinn. �?á klikkaði nánast allt sem gat klikkað hjá Eyjamönnum þessar síðustu mínútur. FH-ingum tókst að minnka muninn niður í eitt mark og höfðu boltann þegar mínúta var eftir. Vörn ÍBV varði slakt skot frá ungri skyttu FH-inga og sigldi þar með sigrinum í höfn. Allt ætlaði um koll að keyra í Laugardalshöllinni en ótrúleg stemning var í húsinu.
Kolbeinn Aron Arnarson var ótrúlegur í úrslitaleiknum og varði nítján skot, þar af þrjú vítaköst. Hann varði einnig mörg skot úr opnum færum á mikilvægum tímapunktum í leiknum. Agnar Smári Jónsson skoraði mest Eyjamanna í leikjunum eða tíu mörk. Hann skoraði síðasta markið gegn FH.
Hvítu Riddararnir stjórnuðu stemningunni mjög vel en þessi stórkostlega stuðningsmannasveit hefur staðið sig ótrúlega vel síðustu tvö ár. Leikmenn og þjálfarar liðsins fara ekki í eitt einasta viðtal án þess að þakka fyrir stuðninginn og stemninguna sem hefur ekki verið meiri í íslenskum handbolta í mörg ár. Og uppskeran er fyrsti bikarmeistaratitill karla frá árinu 1991 þegar Íþróttabandalag Vestmannaeyja vann Víking eftir að hafa lent sjö mörkum undir.
Við heimkomu bikarmeistaranna með Herjólfi var skotið upp flugeldum og blys loguðu á Heimakletti, Miðkletti og Ystakletti.
Erfitt er að segja til um hvað margir voru samankomnir á bryggjunni til að samfagna Bikarmeisturunum en þeir voru eitthvað á milli 1000 og 2000 manns. Og til að undirstrika enn hvert hugur veðurguðanna beinist í handboltanum á Íslandi lagðist hvít slikja yfir Eyjarnar eftir móttökuna með Herjólfi. Hvítt er jú litur ÍBV. �?arna endurtók sig sagan frá síðasta vori þegar ÍBV kom heim með Íslandsmeistaratitilinn. �?á skartaði náttúran sínu blíðasta, stjörnubjörtu kvöldi, fullu tungli og logni.
Á eftir var sigurhátíð í Höllinni og á Háaloftinu fyrir strákana þar sem frítt var inn og sungið og dansað í fullu húsi fram á morgun.
5. flokkur Íslandsmeistari
Stelpurnar í 5. flokki kvenna eru með langbesta liðið á Íslandi í sínum flokki. �?ær unnu öll fimm mótin sem voru í boði á árinu 2015, en ekki nóg með það, því liðið vann hvern og einn einasta leik. Rétt eins og það hafi ekki verið nóg þá vann liðið alla leikina nema tvo með tíu marka mun eða meira. �?etta er ótrúlegur árangur hjá stelpunum sem hafa svo sannarlega hælana þar sem önnur lið komast ekki með tærnar. Á síðasta tímabili urðu stelpurnar einnig Íslandsmeistarar. B-lið stelpnanna er einnig það besta á landinu, í síðasta móti vetrarins komst B-liðið upp í fyrstu deild. Engu öðru B-liði hefur tekist að tryggja sér sæti í efstu deild 5. flokks kvenna. Stelpurnar eru einnig með fyrirmyndarþjálfara en feðgarnir Björn Elíasson og Hilmar Ágúst Björnsson stýra þeim.
Tryggvi lét af störfum
fyrirvaralaust
Tryggvi Guðmundsson, lét af störfum sem aðstoðarþjálfari knattspyrnuliðs karla ÍBV í endaðan júlí 2015. Hann var ekkert að fegra sinn hlut sinn í málinu. Tryggvi mætti undir áhrifum áfengis á æfingu og þá sem aðalþjálfari í forföllum Jóhannesar Harðarsonar yfirþjálfara. Í kjölfarið varð að samkomulagi milli hans og knattspyrnuráðs ÍBV að hann hætti.
Meistarar meistaranna 2015
ÍBV varð meistari meistaranna í karlaflokki í handknattleik eftir nauman sigur á Haukum, 25-24 sigur í Schenker-höllinni. Með sigrinum tókst strákunum að hefna fyrir tapið í fyrra gegn Haukum í sama leik en þá tapaði ÍBV með eins marks mun. �?jálfarar liðsins voru Arnar Pétursson og Sigurður Bragason.
Minningarathöfn um Abel
Landakirkja var þéttsetin í minningarathöfn um Abel Dhaira, markmann ÍBV sem lést 27. mars 2016, aðeins 28 ára gamall eftir stutta baráttu við krabbamein. �?að var ÍBV og vinir hans sem stóðu fyrir athöfninni þar sem sr. Guðmundur �?rn Jónsson, sóknarprestur Landakirkju og Guðni Hjálmarsson, forstöðumaður Hvítasunnusafnaðarins í Eyjum fluttu minningarorð. Hvítasunnufólk sá um tónlist og Árný Heiðarsdóttir, sem gekk honum í einskonar móðurstað. ÍBV fáninn var í kór klæddur sorgarklæði þar sem leikmenn meistaraflokks karla sátu. Athöfnin var látlaus og í anda Abels sem ekki lét mikið fyrir sér fara nema þegar hann var mættur á milli stanganna í marki ÍBV.
3. flokkur Íslandsmeistari
ÍBV eignaðist Íslandsmeistara í 3. flokki karla í fyrsta skiptið, þessir sömu strákar unnu fyrsta Íslandsmeistaratitil ÍBV í 4. flokki árið 2013. Í ár var liðið undir stjórn Svavars Vignissonar og tefldi það fram tveimur liðum, einu sem spilaði í 1. deild og öðru sem spilaði í 3. deild. Liðið sem var í 3. deild var einungis skipað leikmönnum fæddir 1999, á yngra ári flokksins.
Ágúst Emil Grétarsson var útnefndur maður leiksins en hann skoraði átta mörk, í öllum regnbogans litum. Strákarnir fengu síðan móttöku við hæfi á Básaskersbryggju eftir leik þar sem þeir höfðu ferðast með bikarinn til Eyja í Herjólfi með tilheyrandi látum og söngvum.
�?riðji flokkur karla vann einnig í B-úrslitum. Liðið tapaði ekki leik á öllu tímabilinu. �?eir unnu 15 af sínum 16 leikjum í deildinni og voru með 178 mörk í plús.
Lengjubikarmeistarar 2016
Eftir mikla velgengni í Lengjubikarkeppninni tók meistaraflokkur kvenna á móti Breiðabliki í úrslitunum á Hásteinsvelli. ÍBV stelpurnar höfðu betur í 3:2 sigri og fengu því Lengjubikarinn í ár.
ÍBV stelpurnar byrjuðu frábærlega en eftir 25 mínútur var staðan orðin 3:0 fyrir okkar stelpum. Blika-stelpurnar minnkuðu muninn í 3:1 á 27. mínútu. Staðan var 3:1 í hálfleik. Gestirnir skoruðu svo annað mark sitt á 85.mínútu leiksins og voru því lokatölur leiksins 3:2 og ÍBV stelpurnar því handhafar Lengjubikarsins 2016.
Mörk ÍBV skoruðu þær Chloe Lacasse, Lisa Marie Woods og Rebekah Bass.
�?annig fór það
�?að var stór áfangi hjá ÍBV að eiga lið bæði í karla- og kvennaliði ÍBV í knattspyrnu í úrslitum Borgunarbikarsins 2016, sem fram fór á Laugardalsvelli dagana 12. og 13. ágúst. �?ví miður urðu Eyjamenn og -konur að sætta sig við silfurverðlaunin en stuðningsmennirnir klikkuðu ekki og voru síst færri á pöllunum og létu vel í sér heyra.
ÍBV stelpurnar tóku á móti Blikum í úrslitaleiknum. �?ær höfðu farið nokkuð erfiða leið þar sem þrjú Pepsi-deildar lið urðu á vegi þeirra. �?ær slógu KR, Selfoss og �?ór/KA úr leik en leikurinn við �?ór/KA fór alla leið í framlengingu þar sem Eyjakonur reyndust sterkari aðilinn. Í úrslitaleiknum byrjaði leikurinn alveg skelfilega. Olivia Chance, nýr leikmaður Blika, skoraði mark eftir rúma mínútu þar sem hún átti skot fyrir utan sem rataði í netið. Berglind Björg �?orvaldsdóttir, uppalin Eyjakona, skoraði annað mark Blika eftir rúmlega tuttugu mínútna leik þar sem hún skallaði í netið eftir hornspyrnu. Svona var staðan í hálfleik og Blikar líklegri til að bæta við marki heldur en ÍBV að minnka muninn.
Lið ÍBV kom þó virkilega ferskt út í seinni hálfleikinn þar sem Natasha Anasi minnkaði muninn eftir tæpar fimm mínútur í seinni hálfleik. �?á leit allt eins út fyrir að ÍBV gæti jafnað leikinn. Tíu mínútum seinna komust Blikastelpur í 3:1 þegar önnur Vestmannaeyjamær skoraði en Fanndís Friðriksdóttir átti þá hnitmiðað skot út við stöng.
Leikurinn fjaraði fljótt út og voru mínúturnar ekki lengi að líða þar sem ÍBV vantaði mörk, allt kom fyrir ekki og tap í bikarúrslitunum því staðreynd
Karlalið ÍBV spilaði við Valsara eftir að hafa farið erfiðu leiðina í bikarúrslitin, liðið sló út Huginsmenn, Stjörnuna, Breiðablik og FH. Í úrslitaleiknum mætti liðið Val og ekki byrjaði leikurinn gæfulega fyrir Eyjamenn. Valsarinn Sigurður Egill Lárusson fékk fyrsta færið og skoraði fyrsta markið eftir tæpar tíu mínútur, hann var síðan aftur á ferðinni þegar hann tvöfaldaði forystuna eftir tuttugu mínútna leik. Í millitíðinni hafði Gunnar Heiðar �?orvaldsson fengið gott tækifæri til að jafna leikinn fyrir Eyjamenn. Restin af leiknum var nokkuð tíðindalítill og ekki mikið sem gerðist í síðari hálfleik, ÍBV fékk fá eða engin færi til að minnka muninn og Valsarar í raun verðskuldaðir sigurvegarar.
Hrafnhildur til fyrirmyndar
Ansi áhugavert atvik átti sér stað í handboltaleik ÍBV og Hauka í Íslandsmótinu í handbolta haustið 2016. Hrafnhildur Skúladóttir, þjálfari kvennaliðs ÍBV, sýndi þá af sér afar íþróttamannslega hegðun. Forsaga málsins er sú að leikmaður ÍBV varð fyrir hnjaski í leiknum og var spurð af dómara leiksins hvort hún þyrfti aðstoð sjúkraþjálfara. Hún svaraði því neitandi en þá var sjúkraþjálfari Haukaliðsins engu að síður lagður af stað inn á völlinn til að hlúa að leikmanni ÍBV en Hrafnhildur hafði beðið sjúkraþjálfara Hauka um að aðstoða sinn leikmann þar sem sjúkraþjálfari ÍBV var staddur inni í klefa að hlúa að öðrum leikmanni. �?ar sem dómarar leiksins höfðu ekki gefið sjúkraþjálfara Hauka leyfi til þess að stíga inn á völlinn fékk Haukaliðið tveggja mínútna brottvísun og þurfti að spila manni færri. �?að fannst Hrafnhildi ósanngjarnt þar sem hún hafði beðið sjúkraþjálfarann um að fara inn á völlinn. Brá hún þá á það ráð að kippa einum af sínum leikmönnum útaf líka næstu tvær mínúturnar svo áfram yrði jafnt í liðum.Tekið skal fram að ÍBV var undir á þessum tímapunkti og liðið endaði líka á að tapa leiknum. Hrafnhildur fær þó mikið hrós fyrir þessa gríðarlega íþróttamannslegu hegðun en ætla má að afar fáir þjálfarar hefðu gert það sama í þessari stöðu.
Jafnréttisstefna ÍBV
íþróttafélags
Stefnt skal að því að réttur hvers og eins einstaklings til að stunda íþróttir sé ávallt fyrir hendi. Uppbygging íþrótta, hvort sem um æfingar eða keppni er að ræða, þarf að tryggja að allir hafi sömu tækifæri. �?essi jafnréttishugsjón þarf að verða eitt megineinkenni íþrótta. Einstaklingur á rétt á að vera metinn af verðleikum sínum en ekki vegna uppruna, þjóðfélagsstöðu, litarháttar eða kyns.
Hvers vegna á íþróttahreyfingin að vinna að jafnrétti kynja? ,,Rannsóknir á íþróttaiðkun barna og unglinga sýna að þátttaka í íþróttum hefur bein áhrif á andlega og félagslega vellíðan og styrkir sjálfsmynd þeirra.�?� (RUM, �?órólfur �?órlindsson o.fl. 1994). �?essar sömu rannsóknir sýna einnig að þátttaka stúlkna og drengja er ekki sambærileg. Stúlkur stunda íþróttir síður en strákar og brottfall þeirra er mun meira en stráka. �?að er óumdeilt að íþróttir hafa uppeldislegt, menntalegt og heilsufarslegt gildi fyrir þá sem þær stunda. �?ví er mikilvægt að íþróttafélögin séu meðvituð um ábyrgð sína og áhrifamátt hvað þetta varðar og tryggi að allir hafi þar sambærilega möguleika.
ÍBV gerir sig út fyrir að bjóða upp á æfingar í öllum flokkum og af báðum kynjum. Reynt er að bjóða upp á sama æfingamagn hjá báðum kynjum með eins vel menntuðum þjálfurum og kostur er á hverju sinni.
Með þeirri sögu sem hér hefur verið sögð, er reynt að varpa ljósi á það umfangsmikla starf sem fram fer hjá ÍBV íþróttafélagi. �?að gerist þó ekki af sjálfu sér. Mikill fjöldi sjálfboðaliða og stuðningsmanna leggja mikið á sig til að halda merki félagsins og Vestmannaeyja hátt á lofti og eru ástæða þess að félagið er jafn öflugt og raun ber vitni. �?að nýtur líka mikils velvilja bæjarbúa sem seint verður fullþakkað. Meðan félagið nýtur slíks, er framtíð þess björt. �?etta samantekt ÍBV íþróttafélags er tileinkað öllu því góða fólki sem að baki félagsins stendur.
�?trúlegur árangur
Árangur af íþróttaiðkun er ekki hið eina, fleira gott leiðir hún af sér en titla. En í þessari samantekt er eingöngu horft á titla félagsins frá því það var stofnað í lok ársins 1996. Á ýmsu hefur gengið á tímabilinu. Sigrar hafa unnist, en líka hafa sum árin valdið vonbrigðum eins og gengur. En óneitanlega hefur árangur félagsins verið glæsilegur. Alls hefur félagið hlotið 87 meistaratitla í handbolta og fótbolta, þar af 7 meistaratitla í efstu deildum þessara íþróttagreina. Að 4300 manna samfélag eins og Vestmannaeyjar geti státað af þeim árangri sem náðst hefur í handbolta og knattspyrnu, er sennilega einstakt. Og að eiga lið í öllum efstu deildum þessara íþróttagreina getur ekkert annað sveitarfélag státað af nema Reykjavík.
1997
M.fl. karla í knattspyrnu – Íslandsmeistari
�?jálfari: Bjarni Jóhannsson
M.fl. karla í knattspyrnu – Deildarbikarmeistari �?jálfari: Bjarni Jóhannsson
5. fl. kvenna í knattspyrnu – Íslandsmeistari �?jálfari: Erna �?orleifsd./Stefanía Guðjónsdóttir
1998
M.fl. karla í knattspyrnu – Íslandsmeistari �?jálfari: Bjarni Jóhannsson
M.fl. karla í knattspyrnu – Bikarmeistari �?jálfari: Bjarni Jóhannsson
M.fl. karla í knattspyrnu – Meistarar meistaranna �?jálfari:Bjarni Jóhannson
2. fl. kvenna í knattspyrnu – Íslandsmeistari
�?jálfari: Heimir Hallgrímsson
4. fl. B kvenna – Íslandsmeistari
�?jálfari: Íris Sæmundsdóttir
1999
4. fl. kvenna í knattspyrnu – Íslandsmeistari
�?jálfari: Íris Sæmundsdóttir
4. fl. kvenna í innnahússknattsp. – Íslandsmeistari
6. fl. karla í knattspyrnu – Shellmótsmeistari A-liða �?jálfari: Jón �?lafur Daníelsson
4. fl. karla í handbolta – Bikarmeistari
�?jálfari: Sigurður Bragason/Akba
2000
M.fl. kvenna í handbolta – Íslandsmeistari �?jálfari: Sigbjörn �?skarsson
M.fl. kvenna í handbolta – Meistarar meistaranna �?jálfari: Sigbjörn �?skarsson
6. fl. B kvenna í knattspyrnu – Íslandsmeistari
2. fl. kvenna í knattspyrn – Bikarmeistari
3. fl. kvenna í innanhússknattsp. – Íslandsmeistari
5. fl. kvenna í handbolta – Íslandsmeistari �?jálfari: Stefanía Guðjónsdóttir
2001
M.fl. kvenna í handbolta – Bikarmeistari �?jálfari: Sigbjörn �?skarsson
M.fl. kvenna í handbolta – Meistarar meistaranna �?jálfari:Erlingur Richardsson
3. fl. kvenna í knattspyrnu – Íslandsmeistari
2. fl. kvenna í innanhússknattsp. – Íslandsmeistari �?jálfari: Sindri Grétarsson
4. fl. kvenna í handbolta – Deildarmeistari �?jálfari: Michael Akbasev
2002
M.fl. kvenna í handbolta – Bikarmeistari �?jálfari: Erlingur Richardsson
M.fl. kvenna í handbolta – Meistarar meistaranna
�?jálfari:Unnur Sigmarsdóttir
2003
M.fl. kvenna í handbolta – Íslandsmeistarar �?jálfari: Unnur Sigmarsdóttir
M.fl. kvenna í handbolta – Deildarmeistarar �?jálfari: Unnur Sigmarsdóttir
M.fl. kvenna í handbolta – Meistarar meistaranna �?jálfari:Aðalsteinn Eyjólfsson
4. fl. kvenna í innanhússknattsp. – Íslandsmeistarar
2004
M.fl. kvenna í handbolta – Íslandsmeistarar �?jálfari: Aðalsteinn Eyjólfsson
M.fl. kvenna í handbolta – Bikarmeistarar �?jálfari: Aðalsteinn Eyjólfsson
M.fl. kvenna í handbolta – Deildarmeistarar �?jálfari: Aðalsteinn Eyjólfsson
M.fl. kvenna í handbolta – Meistarar meistaranna �?jálfari: Aðalsteinn Eyjólfsson
M.fl. karla í handbolta – Íslandsmeistarar í 1. deild �?jálfari: Erlingur Richardsson
M.fl. kvenna í knattspyrnu – Bikarmeistari �?jálfari: Heimir Hallgrímsson
M.fl. kvenna í knattspyrnu – Deildarbikarmeistari �?jálfari: Heimir Hallgrímsson
5. fl. C kvenna í handbolta – Íslandsmeistari
5. fl. C kvenna í handbolta – Deildarmeistari
4. fl. B kvenna í knattspyrnu – Íslandsmeistari
2005
3. fl. kvenna í handbolta – Íslandsmeistari í 2. deild
5. fl. A kvenna í handbolta – Íslandsmeistari
5. fl. A kvenna í handbolta – Deildarmeistari
5. fl. B kvenna í handbolta – Deildarmeistari
2006
M.fl. kvenna í handbolta – Íslandsmeistari �?jálfari: Alfreð �?rn Finnsson
6. fl. A karla í knattspyrnu – Íslandsmeistari �?jálfari: Heimir/Íris Sæmundsd.
6. fl. karla í knattspyrnu – Shellmótsmeistari �?jálfari: Heimir/Íris Sæmundsd.
2007
4. fl. A kvenna í handbolta – Íslandsmeistari �?jálfari: Unnur Sigmarsdóttir
4. fl. B kvenna í handbolta – Íslandsmeistari �?jálfari: Unnur Sigmarsdóttir
3. fl. kvenna í knattspyrnu – Íslandsmeistari 7 m/lið 3. fl. kvenna í knattspyrnu – Pæjumótsmeistari B-liða
3. fl. kvenna í knattspyrnu – Símamótsmeistari B-liða
2008
M.fl. karla í knattspyrnu – Íslandsmeistari í 1. deild �?jálfari: Heimir Hallgrímsson
6. fl. C kvenna í handbolta – Íslandsmeistari
2. fl. kvenna í knattspyrnu – Íslandsmeistari �?jálfari: Jón �?lafur Daníelsson
2009
6. fl. C karla í handbolta – Deildarbikarmeistari
2010
M.fl. kvenna í knattspyrnu – Íslandsmeistari innanhúss
�?jálfari: Jón �?lafur Daníelsson
M.fl. kvenna í knattspyrnu – Íslandsmeistari í 1. deild �?jálfari: Jón �?lafur Daníelsson
2012
M.fl. karla í knattspyrnu – Íslandsmeistari innanhúss �?jálfari: Magnús Gylfason
M.fl. kvenna í knattspyrnu – Íslandsmeistari innanhúss �?jálfari: Jón �?lafur Daníelsson
2. fl. karla í handbolta – Deildarmeistari í 2. deild
2013
M.fl. karla í handbolta – Íslandsmeistari í 1. deild �?jálfari: Arnar Pétursson/Eringur
4. fl. yngri karla í handbolta – Íslandsmeistari �?jálfari: Jakob Lárusson
5. fl. eldri kvenna í handbolta – Íslandsmeistari
2014
M.fl. karla í handbolta – Íslandsmeistari �?jálfari: Arnar Pétursson/Gunnar
4. fl. eldri karlar í handbolta – Bikarmeistari �?jálfari: Stefán Árnason
4. fl. yngri kvenna í handbolta – Íslandsmeistari �?jálfari: Unnur Sigmarsdóttir
6. fl. eldri kvenna í handbolta – Íslandsmeistari �?jálfari: Elísa Sigurðardóttir
4. fl. yngri kvenna í handbolta – Bikarmeistari �?jálfari: Unnur/Jón G.Viggósson
6. fl. A kvenna í knattspyrnu – Íslandsmeistari
5. fl. kvenna í knattspyrnu – Símamótsmeistari A-liða �?jálfari: Sigríður Ása Friðriksd.
2015
M.fl. karla í handbolta – Bikarmeistari
�?jálfari: Gunnar Magnúss/Sig.B.
M.fl. karla í handbolta – Meistarar meistaranna �?jálfari: Sigurður Bragas/Gunnar
3. fl. kvenna í handbolta – Bikarmeistari �?jálfari: Jón Gunnl. Viggósson
3. fl. kvenna í handbolta – Deildarmeistari í 1.deild �?jálfari: Jón Gunnl. Viggósson
5. fl. yngri kvenna í handbolta – Íslandsmeistari �?jálfari: Hilmar Ágúst Björnsson
5. fl. B kvenna í knattspyrnu – Íslandsmeistari �?jálfari: Sigríður Ása Friðriksd.
2016
M.fl. karla í knattspyrnu – Fótbolti.net meistari �?jálfari: Bjarni Jóhannsson
M.fl. kvenna í knattspyrnu – Lengjubikarmeistari �?jálfari: Ian Jeffs
3. fl. karla í handbolta – Íslandsmeistari �?jálfari: Svavar Vignisson
3. fl. karla í handbolta – Deildarmeistari í 1. deild �?jálfari: Svavar Vignisson
3. fl. karla í handbolta – Íslandsmeistari b-liða �?jálfari: Svavar Vignisson
3. fl. karla í handbolta – Deildarmeistari í 3. deild �?jálfari: Svavar Vignisson
3. fl. kvenna í handbolta – Deildarmeistari í 2. deild �?jálfari: Hrafnhildur �?sk Skúlad.
4. fl. eldri karla í handbolta – Íslandsmeistari B-úrslit �?jálfari: Hilmar Ágúst Björnsson
4. fl. yngri kvenna í handbolta – Deildarmeist. í 2. deild �?jálfari: Björn Elíasson
5. fl. eldri kvenna í handbolta – Íslandsmeistari �?jálfari: Hilmar Ágúst Björnsson
6. fl. yngri kvenna í handbolta – Íslandsmeistari �?jálfari: Bergvin Haraldsson
(Heimildir: Eyjafréttir, Morgunblaðið, fundargerðir ÍBV íþróttafélags, Íþróttafélagið �?ór í 100 ár)
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.