�??Jú, það er rétt að ég er búinn að kaupa Höllina af Íslandsbanka,�?? sagði �?óroddur Stefánsson, þegar haft var samband við hann í gær. �?óroddur er fæddur og uppalinn í Eyjum og hefur víða komið við í viðskiptalífinu, rak m.a. Bónus-vídeó í mörg ár og á veitingastaðinn Ruby Tuesday.
�??�?g er ekkert farinn að hugsa þetta en sé fyrir mér að reksturinn sem nú er í húsinu verði þar áfram. �?g sé mikla möguleika í þessu á hverju strái í Vestmannaeyjum sem eru fallegasti staður landsins. Ferðamenn sem hingað koma skipta milljónum og þeim hlýtur að fjölga sem ekki vilja missa af dýrðinni í Eyjum. Svo hugsar maður alltaf hlýlega til æskustöðvanna og verður gaman að taka þátt í því þegar ferðamönnum fjölgar. Sem vonandi verður með nýrri ferju á næsta ári.�??