Nú síðdegis í dag var litháískum kajakræðara bjargað um borð í ferðamannabátinn Víking sem fyrirtækið Viking Tours gerir út. Kajak mannsins var á hvolfi og fullur af sjó þegar að var komið en samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni í Vestmanneyjum, hafði maðurinn ákveðið að reyna synda í land. Hann var hins vegar staddur við Faxasund og ekkert nema snarbrött björgin í kring og hefði hann því þurft að synda talsverða leið. Tilviljun ein réði því að Víkingur var á sömu slóðum.