Baltasar Kormákur og fyrirtæki hans Sögn ehf hefja brátt tökur á nýrri kvikmynd, sem kallast DJÚPIÐ. Um er að ræða leikna bíómynd sem byggir á sannsögulegum atburðum frá árinu 1984 þegar Hellisey VE fórst nálægt Vestmannaeyjum og Guðlaugi Friðþórssyni tókst með undraverðum hætti að halda lífi, eins og alþekkt er.