Töluvert af ryki í kennslustofum Hamarsskóla
Hamarsskóli. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ábendingar bárust frá starfsfólki í Hamarsskóla til tæknideildar í október um að skoða þyrfti kennslustofur skólans á vesturgangi, á neðri hæð, þar sem starfsfólk þar hefur fundið fyrir óútskýrðum einkennum frá öndunarvegi.

Þegar slíkar ábendingar berast varðandi fasteignir sveitarfélagsins er brugðist við um leið í þeim tilgangi að finna út hvað veldur, segir í tilkynningu frá framkvæmdarsviði Vestmannaeyjabæjar sem birtist á vefsíðu bæjaryfirvalda.

Þar segir einnig að fengnir hafi verið sérfræðingar frá Disact til að framkvæma ýmsar athuganir í Hamarsskóla en þær gáfu þó ekki augljósa skýringu fyrir þeim einkennum sem starfsfólk finnur fyrir. Ákveðið var að fara samt í ýmsar aðgerðir skv. ráðleggingum s.s að endurnýja gólfefni og setja loftskiptitæki í glugga, með von um að þær hefðu jákvæð áhrif.

Við síðustu athugun sem gerð var í október kom síðan í ljós að töluvert af ryki í kennslustofunum, og var það skoðað betur í kjölfarið.
Líklegt er að ryk safnist fyrir í loftaplötum og gæti það verið skýringin á þeim einkennum sem starfsfólkið hefur fundið fyrir enda getur ryk valdið verulegum óþægindum hjá einstaklingum sem eru næmir fyrir slíku.

Ýmsar úrbætur til skoðunar

Aðili sem gerði síðustu mælingu í október benti á mikilvægi þess að loftaplöturnar væru þrifnar a.m.k. tvisvar á ári en það hefur ekki verið hluti af framkvæmdarþáttum áður.

Búið er að þrífa plöturnar og verða þær sprautumálaðar í jólafríinu, með von um að það dragi úr rykmynduninni. Besti kosturinn í stöðunni væri að skipta loftaplötunum út en það er flókið verk, þar sem þær voru settar í steypumótin þegar platan milli hæða var steypt.

Því er til skoðunnar á næsta ári að setja upp kerfisloft til að klæða yfir plöturnar og fyrirbyggja þannig rykmyndun. Á næsta ári er einnig stefnt á að drena í kringum skólann og skoða lausn á loftræstingu fyrir vesturgang, segir í tilkynningu framkvæmdarsviðs Vestmannaeyjabæjar.

Þessu tengt: Fundu enga myglu í Hamarsskóla

Nýjustu fréttir

Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
Tími til kominn að taka næsta skref
Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja í fyrra 
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.