Trúi ekki öðru en að þeir hafi pung til að klára málið, strax
Vegna frétta af máli Fanneyjar Ásbjörndóttur í lok síðustu viku, þar sem henni er neitað um lífsnauðsynleg lyf, og síðan frétta af ákvörðun ríkisstjórnar Íslands að veita 2 milljörðum til flóttamannahjálpar hef ég óneitanlega velt því fyrir mér hvurslags samfélagi við búum eiginlega í. Ekki er til nægt fjármagn í ríkissjóði til að veita þegnum landsins lífsnauðsynleg lyf en nægt fé til að aðstoða erlenda flóttamenn.
�?etta segir Grímur Gíslason á Fésbókarsíðu sinni um mál Fanneyjar.
Nú trúlega er ég búin að segja eitthvað sem alls ekki má í umræðunnni á Íslandi. Rasisti, útlendingahatari, einangrunnarsinni og fleira í þeim dúr eru orð sem yfirleitt er gripið til þegar einhver leyfir sér að hafa aðra skoðun en hina �??einu réttu�?? í þessum efnum. Í mínum huga snýst málið bara alls ekki um það. �?etta snýst um réttlæti og eðlilega forgangsröðun. �?g hef ekkert á móti erlendu fólki. Tel sjálfsagt að aðstoða flóttamenn eins og við mögulega getum en spurningin sem að ég velti fyrir mér er bara sú hvernig við getum aðstoðað tugi eða hundruð flóttamanna, útbúið þeim skjól, veitt þeim aðstoð og nauðsynlega heilbrigðisþjónustu ef að við getum ekki einu sinni séð um okkar eigin þegna. Ekki einu sinni veitt þeim lífsnauðsynleg lyf. Í mínum huga er hreinlega eitthvað mjög öfugsnúið í þeim efnum.
�?g hef enga þekkingu til að hafa skoðun á því hvort að sá dómur sem féll í máli Fanneyjar er réttur eða sanngjarn enda er það í mínum huga algjört aukaatriði. �?etta mál átti aldrei að rata í dómssali �?? íslenska ríkið átti að sjá til þess að leysa þetta mál áður en það fór þá leið.
�?að eru lágmarks mannréttindi að fólk fái þá lækningu sem nauðsynleg er og í boði er. �?að hefur því vakið athygli mína að það fólk sem yfirleitt lætur mikið í sér heyra varðandi mannréttindi og telur sig sjálfskipaða gæslumenn mannréttinda á Íslandi skuli ekkert láta í sér heyra nú. �?g átti von á að það efndi til útifundar við velferðarráðuneytið til að standa vörð um mannréttindi Fanneyjar, líkt og það gerir oft við innanríkisráðuneytið ef að það telur brotið á rétti hælisleitenda. En ég varð ekkert var við slíkt uppistand. Skrýtið.
�?g átti líka von á að sjá í fréttum í kvöld að þingmenn yrðu fljótir í ræðustól til að taka upp hanskann fyrir Fanney Ásbjörnsdóttur, íslenskan þegn sem fær ekki þá þjónustu sem henni auðvitað ber í heilbrigðiskerfinu en því miður virtust þeir hafa meiri áhyggjur af borgurum Sýrlands en sínum eigin þegnum.
Mál Fanneyjar er mjög sérstakt fyrir þær sakir að hún er skjólstæðingur íslenska heilbrigðiskerfisins þegar að hún smitast af lifrarbólgu C. Hún er í umsjá þess heilbrigðiskerfis, sem rekið er af íslenska ríkinu, þegar að hún smitast við blóðgjöf. �?að sama kerfi og smitaði skjólstæðing í sinni vörslu og umönnun það neitar henni síðan um lyf sem veitt geta lækningu við smitinu sem hún fékk innan kerfisins. �?etta er náttúruleg ótrúlega ósvífið og hreinlega dólgslegt af íslenska ríkinu að skammast sín ekki til að veita Fanney þá lyfjameðferð, sem yfir 90% líkur eru á að lækni hana af þessum sjúkdómi sem hún fékk undir verndarvæng og þá um leið á ábyrgð íslensks heilbrigðiskerfis.
Ef að til eru 2 milljarðar í ríkiskassanum sem nota má til aðstoðar við flóttamenn frá öðrum löndum, sem sannarlega þurfa á aðstoð að halda, þá eru líka til þær milljónir sem þarf til að veita sjúklingum eins og Fanney Ásbjörnsdóttur þau lífsnauðsynlegu lyf sem hún þarf á að halda.
Kristján �?ór Júlíusson og Bjarni Ben ég trúi ekki öðru en að þið hafið pung til að klára þetta mál og það ekki seinna en strax.

Nýjustu fréttir

Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.