Uppbygging leikvalla og skólalóða í Eyjum
Mynd: Vestmannaeyjabær

Í Vestmannaeyjum er að finna fjölda leikvalla fyrir börn. Nýlega réðst Vestmannaeyjabær í gerð nýrra leikvalla og hreystivallar, en hefur jafnframt staðið að endurbótum á eldri leikvöllum.

Þá hefur verið ákveðið hvar nýjum leikvöllum verður komið fyrir í framtíðinni. Hér er að finna upplýsingar um nýja og endurbætta leikvelli í þeim fjórum bæjarhlutum sem sýndir eru á eftirfarandi korti og upplýsingar um staðsetningu nýrra leikvalla í framtíðinni:

Leikvöllur

1. Vesturbær (vestur frá Illugagötu)

2. Efri byggð (suður frá Kirkjuvegi)

3. Austurbær (austur frá Kirkjuvegi)

4. Miðsvæðis (norður frá Kirkjuvegi

Áhugaverðir og skemmtilegir leikvellir til staðar

1. Vesturbær

Dverghamar

Í Dverghamri er að finna einn af stærstu leikvöllum Vestmannaeyja og nú á þessu ári hófust endurbætur á honum. Þar eru ný leiktæki, eins og rólur, klifurtæki og vegasalt. Á leikvellinum er líka fótboltavöllur.

Við Íþróttahúsið

Við Íþróttahús Vestmannaeyja er að finna glænýjan hreystivöll með fjölbreyttum tækjum sem henta einstaklingum hærri en 140 cm. Með tækjunum er hægt að æfa styrk, liðleika, þol og jafnvægi. Allir geta notað tækin óháð getu og ástandi. Undirlagið á vellinum er gervigras sem hentar mjög vel á hreystivelli.

Leikvithr

Hamarsskóli

Vestan við Hamarsskóla er glænýtt leiksvæði. Austan við skólann er einnig leiksvæði sem og sparkvöllur með gervigrasi. Leiksvæðið við skólann er það glæsilegasta og er þar flest að finna sem þekkist á leiksvæðum sem þessum.

Kirkjugerði

Á leikskólanum Kirkjugerði er flott leiksvæði sem opið er almenningi eftir að skólastarfi lýkur á daginn og um helgar.

Herjólfsdalur

Undir Fjósakletti í Herjólfsdal er leiksvæði þar sem er að finna aparólu, rólu sem snýst í hringi, tvær venjulegar dekkjarólur og á milli þeirra er lítil klifurgrind. Leiksvæðið er á stórum grasfleti og því tilvalið fyrir allskonar leiki.

2. Efri byggð

Malarvöllur

Við malarvöllinn stendur hjólabrettapallur sem og gott svæði til þess að leika sér á hjólum..

3. Austurbær

Búastaðabraut

Á svæði milli Búastaðabrautar og Ásavegs er nýr og glæsilegur leikvöllur þar sem börn á öllum aldri geta fundið leiktæki við sitt hæfi. Á vellinum er að finna klifurkastala, gormatæki og lítið klifurhús. Á vellinum eru tvær rólur, þ.á.m. ein ungbarnaróla. Lagt var gevigras leikvöllinn þar sem áður var möl.

Leikvbuastadarbr

Sóli

Á leikskólanum Sóla er gott afgirt leiksvæði sem opið er almenningi þegar skólastarf er lokið á daginn.

4. Miðsvæðið

Illugagata

Leikvillugagotu

Á svæðinu milli Illugugötu og Brimhólabrautar er nýr og glæsilegur leikvöllur, þar sem er að finna rennibraut, stóra rólu, gormatæki og lítið klifurhús. Lagt var gervigras í staðinn fyrir möl.

Stakkó

Á Stakkagerðistúni er gríðarlega vinsælt og gott leiksvæði. Stórt svæði er til þess að leika sér á. Jafnframt er þar stór og vinsæll ærslabelgur. Á svæðinu er einnig að finna fjórar rólur (þar af ein ungbarnarólu), þrjá klifurstaura og litla klifurgrind.

Barnaskólinn

Við Barnaskólann er gott leiksvæði þar sem meðal annars er að finna sparkvöll með gervigrasi. Svæðið var nýlega gert upp og er hið glæsilegasta.

Leikvbarnaskoli

Nýir leikvellir í náinni framtíð

Stefnt er að gerð nýrra leikvalla í náinni framtíð. Áhersla verður lögð á barnvænt umhverfi með góðu og traustu undirlagi, viðhaldsgóðum leiktækjum, snyrtilegu nærumhverfi, þar sem hugað verður að lýsingu, gróðri, hellulögn, bekkjum og ruslafötum.

Búhamar,

Svæðið er 80 m2 að stærð. Þar eru fyrir nokkur leiktæki, svo sem rennibraut og vegasalt. Til stendur til að setja yfirborðsefni á jörðina, td. gervigras og bæta við klifurtæki. Jafnframt stendur til að koma fyrir bekk, lýsingu, ruslatunnu og gróðurbeði á svæðinu.

Leikbuhamar

Hrauntún,

Um er að ræða 100 m2 svæði, þar sem áður var leikvöllur. Svæðið þarf að drena. Jafnframt verður komið fyrir yfirborðsefni, tveimur leiktækjum, lýsingu, gróðri, bekk og ruslatunnu.

Leikv.-hrauntun

Brattagata

Svæðið er um 200 m2 að flatarmáli. Í dag eru á svæðinu vegasalt og fjórar rólur. Leggja þarf nýtt yfirborðsefni á svæðið að hluta. Jafnframt verða eldri leiktæki yfirfarin og leiktækjum bætt við, t.d. klifurtæki. Komið verður fyrir bekk, ruslatunnu og gróðurbeði.

Leikv-brattagata

Fjólugata

Svæðið er um 50 m2 að flatarmáli. Á svæðinu eru rólur í ágætu ástandi, en til stendur að skipta um jarðveg, koma fyrir yfirborðsefni og bæta við leiktækjum, bekk og rulsatunnu.

Leikv.fjolug

Vigtartorg.

Ætlunin er að koma fyrir leiktækjum og leggja slitsterk yfirborðsefni á jörðina með tilheyrandi fallvörnum fyrir börn að leik.

Það skiptir miklu máli að byggja upp nærumhverfið og er uppygging leikvalla í hverfum liður í því. Staðsetning vallanna tekur mið af skýrslu sem löggð var fyrir umhverfis- og skipulagsráð á síðasta ári.

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.