„Þetta er ósköp svipað og verið hefur síðustu ár,“ sagði Bragi Ólafsson, hjá Flugfélagi Íslands, þegar hann var spurður út í bókanir fyrir þjóðhátíð. „Við vorum með 12 vélar á föstudeginum í fyrra og verðum með 12 núna. Á mánudeginum vorum við með 28 vélar og erum komin með 22 vélar núna og ekki alveg fullbókað í þær. Ég held að það séu margir að bíða eftir að Landeyjahöfn komist í gagnið. Bókanir hafa borist jafnt og þétt og við bárum saman bókanir þann 18. júlí í fyrra og núna og þetta er mjög svipað,“ sagði Bragi en flugfélagið flutti á milli 1300 og 1400 manns til og frá Eyjum um þjóðhátíðina í fyrra.