Valur Smári Heimisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV. Hann tekur við af Trausta Hjaltasyni sem gegnt hefur starfinu síðustu tvö ár en Trausti hættir um áramót. Valur Smári, sem er 24 ára gamall, er ekki ókunnur íslenskri knattspyrnu þar sem hann hefur skrifað um leiki ÍBV í Eyjum fyrir Vísi.is og Fréttablaðið. Undanfarið hefur hann hins vegar verið í námi í Markaðsfræði við Háskóla Íslands en hann er að ljúka náminu.