Í ljósi þess að Herjólfur getur ekki siglt í Landeyjahöfn yfir háveturinn eru uppi hugmyndir um að leigja aðra og grunnristari ferju í vetur sem gæti siglt til Landeyjahafnar þá daga sem Herjólfur kemst ekki. �?annig mætti spara bæði dýpkunar- og olíukostnað sem er mun meiri en þegar siglt er til �?orlákshafnar. �?etta kom fram í Morgunblaðinu. �?ar er því haldið fram að þetta gæti orðið ódýrara fyrir ríkið þegar upp er staðið. Síðasta vetur gaf ekki í Landeyjahöfn í 70 daga þannig að ef áætlanir ganga upp gæti þetta orðið veruleg bót í samgöngum við Vestmannaeyjar í vetur.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðiðað en meira geti hún ekki sagt fyrr en síðar í þessum mánuði. Gert er ráð ráð fyrir 250 milljónum á fjárlögum næsta árs.
�??�?g hef frá því í júní unnið með fulltrúum ráðherra og hennar fólki að lausn fyrir Landeyjahöfn. �?ingmenn Suðurlands hafa komið að verkinu og hefur munað um minna. Fundirnir mælast í tugum og vinnustundirnar í hundruðum. Stærsta verkefnið var að tryggja að í þeim erfiðu fjárlögum sem nú liggja fyrir, yrði lífi haldið í þróun samgangna um Landeyjahöfn og framtíðarlausn. �?að var ekki auðvelt verk,�?? sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri, þegar hann var spurður um stöðu mála.
�??Fullyrðingar að heiman, sem eiga sér litla stoð í veruleikanum, voru ekki að hjálpa. �?g er því mjög ánægður með að fjárlagabaráttan skyldi skila árangri. �?ar var ekki bara tryggt fé til að vinna að frekari rannsóknum á höfninni og undirbúningi nýsmíði heldur einnig fé til að leysa vandann til skemmri tíma. �?g hef örugglega sagt það þúsund sinnum og ég segi það enn, þessi vandi leysist ekki með gífuryrðum og hávaða. Allir sem að verkefninu koma eru algerlega heilir í því að leysa vandann. Hann er hinsvegar sá að það er takmarkað hvað er tæknilega framkvæmanlegt. Á einhvern óskiljanlegan máta erum við Eyjamenn hinsvegar allt í einu farnir að skipta okkur í með og móti fylkingar. Á að breyta höfninni eða smíða nýtt skip? Auðvitað á að breyta höfninni eins mikið og mögulegt er, það er hinsvegar ekki nóg. �?að þarf líka nýtt skip, og þá ef til vill tvö frekar en eitt. �?essir framtíðartónar duga okkur hinsvegar ekki.�??
Lausn til skemmri tíma
Elliði sagði alveg ljóst að úr því sem komið er verði ekki komið nýtt skip fyrr en árið 2016. �?að sé líka ljóst að gera þurfi frekari rannsóknir og endurskoða fyrri áætlanir áður en milljörðum verður varið í breytingar á höfninni. �??�?angað til þarf eitthvað að gerast til að bæta nýtingu hafnarinnar yfir vetrartímann. Núverandi ástand er óþolandi. �?að eru líka ónot í manni með að fara að smíða skip í höfn sem aldrei hefur verið hægt að nota í heilt ár. Okkur vantar meiri siglingareynslu yfir vetrartímann. Sú reynsla verður ómetanlegt innlegg í undirbúning nýsmíði,�?? sagði Elliði og upplýsti að þrátt fyrir mikla leit hefði enn ekki fundið skip sem hentaði í Landeyjahöfn.
Elliði segir að minna skip dugi ekki eitt og sér og vill að Herjólfur verði áfram skip A í Landeyjahöfn. �??Herjólfur ræður hinsvegar ekki við meira en 2,5 metra ölduhæð á þessari siglingaleið. �?að væri því æskilegt að eiga kost B í Landeyjahöfn sem gæti nýtt hana þegar dýpi er of lítið fyrir Herjólf eða sjólag of erfitt fyrir hann, jafnvel þótt flutningsgetan í hverri ferð verði minni en í Herjólfi. Hún verður þó alltént meiri í fjórum ferðum í Landeyjahöfn en tveimur ferðum Herjólfs í �?orlákshöfn.�??
Elliði sagði að ný og grunnristari ferja veiti siglingareynslu í Landeyjahöfn sem myndi nýtast þegar ný ferja verður boðin út næsta vor.
Samkvæmt heimildum Eyjafréttir ætti ný ferja aðeins að vera til viðbótar yfir veturinn. Ekki stendur til að leggja Herjólfi og eru raddir um að Baldur sé í sigtinu.