Vandinn leysist ekki með gífuryrðum og hávaða
Í ljósi þess að Herjólfur getur ekki siglt í Landeyjahöfn yfir hávetur­inn eru uppi hugmyndir um að leigja aðra og grunnristari ferju í vetur sem gæti siglt til Landeyjahafnar þá daga sem Herjólfur kemst ekki. �?annig mætti spara bæði dýpkunar- og olíukostnað sem er mun meiri en þegar siglt er til �?orlákshafnar. �?etta kom fram í Morgunblaðinu. �?ar er því haldið fram að þetta gæti orðið ódýrara fyrir ríkið þegar upp er staðið. Síðasta vetur gaf ekki í Landeyjahöfn í 70 daga þannig að ef áætlanir ganga upp gæti þetta orðið veruleg bót í samgöngum við Vestmannaeyjar í vetur.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðiðað en meira geti hún ekki sagt fyrr en síðar í þessum mánuði. Gert er ráð ráð fyrir 250 milljónum á fjárlögum næsta árs.
�??�?g hef frá því í júní unnið með fulltrúum ráðherra og hennar fólki að lausn fyrir Landeyjahöfn. �?ingmenn Suðurlands hafa komið að verkinu og hefur munað um minna. Fundirnir mælast í tugum og vinnustundirnar í hundruðum. Stærsta verkefnið var að tryggja að í þeim erfiðu fjárlögum sem nú liggja fyrir, yrði lífi haldið í þróun samgangna um Landeyjahöfn og framtíðarlausn. �?að var ekki auðvelt verk,�?? sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri, þegar hann var spurður um stöðu mála.
�??Fullyrðingar að heiman, sem eiga sér litla stoð í veruleikanum, voru ekki að hjálpa. �?g er því mjög ánægður með að fjárlagabaráttan skyldi skila árangri. �?ar var ekki bara tryggt fé til að vinna að frekari rannsóknum á höfninni og undir­búningi nýsmíði heldur einnig fé til að leysa vandann til skemmri tíma. �?g hef örugglega sagt það þúsund sinnum og ég segi það enn, þessi vandi leysist ekki með gífuryrðum og hávaða. Allir sem að verkefninu koma eru algerlega heilir í því að leysa vandann. Hann er hinsvegar sá að það er takmarkað hvað er tæknilega framkvæmanlegt. Á einhvern óskiljanlegan máta erum við Eyjamenn hinsvegar allt í einu farnir að skipta okkur í með og móti fylkingar. Á að breyta höfninni eða smíða nýtt skip? Auðvitað á að breyta höfninni eins mikið og mögulegt er, það er hinsvegar ekki nóg. �?að þarf líka nýtt skip, og þá ef til vill tvö frekar en eitt. �?essir framtíðartónar duga okkur hinsvegar ekki.�??
Lausn til skemmri tíma
Elliði sagði alveg ljóst að úr því sem komið er verði ekki komið nýtt skip fyrr en árið 2016. �?að sé líka ljóst að gera þurfi frekari rannsóknir og endur­skoða fyrri áætlanir áður en milljörðum verður varið í breytingar á höfninni. �??�?angað til þarf eitthvað að gerast til að bæta nýtingu hafnarinnar yfir vetrartímann. Núverandi ástand er óþolandi. �?að eru líka ónot í manni með að fara að smíða skip í höfn sem aldrei hefur verið hægt að nota í heilt ár. Okkur vantar meiri siglingareynslu yfir vetrartím­ann. Sú reynsla verður ómetanlegt innlegg í undirbúning nýsmíði,�?? sagði Elliði og upplýsti að þrátt fyrir mikla leit hefði enn ekki fundið skip sem hentaði í Landeyjahöfn.
Elliði segir að minna skip dugi ekki eitt og sér og vill að Herjólfur verði áfram skip A í Landeyjahöfn. �??Herjólfur ræður hinsvegar ekki við meira en 2,5 metra ölduhæð á þessari siglingaleið. �?að væri því æskilegt að eiga kost B í Landeyjahöfn sem gæti nýtt hana þegar dýpi er of lítið fyrir Herjólf eða sjólag of erfitt fyrir hann, jafnvel þótt flutningsgetan í hverri ferð verði minni en í Herjólfi. Hún verður þó alltént meiri í fjórum ferðum í Landeyjahöfn en tveimur ferðum Herjólfs í �?orlákshöfn.�??
Elliði sagði að ný og grunnristari ferja veiti siglingareynslu í Landeyja­höfn sem myndi nýtast þegar ný ferja verður boðin út næsta vor.
Samkvæmt heimildum Eyjafréttir ætti ný ferja aðeins að vera til viðbótar yfir veturinn. Ekki stendur til að ­leggja Herjólfi og eru raddir um að Baldur sé í sigtinu.

Nýjustu fréttir

Eyjakonur töpuðu heima gegn Breiðablik
Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Heimaklettur í allri sinni dýrð – en gönguleiðin bíður enn úrbóta
Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu
Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld
Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.