Í kjölfar þess að meirihluti bæjarstjórnar Vestmannaeyja hafnaði tillögu minnihlutans um
frístundakort hefur Dóra Björk Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ÍBV, lýst yfir óánægju sinni. Á Facebook síðu hennar kemur fram að hún hafi verið þess fullviss að bæjarstjórn myndi samþykkja tillöguna með einhverjum breytingum, en því miður hafi ekkert orðið úr því. Dóra Björk vísar máli sínu til stuðnings til
skýrslu frá Rannsóknum og greiningu frá 2012 um ánægju í íþróttum og mikilvægi þess að hafa gott íþróttastarf.
Enn fremur skrifar Dóra Björk: �??Eftir að hafa skoðað ársreikning Vestmannaeyjabæjar og ársreikning Garðabæjar frá 2012 (en ég fann ekki ársreikning 2013 frá Garðabæ) þá get ég ekki skilið þessar útskýringar meirihlutans á peningaleysi. Afkoma bæjarins þetta ár eftir fjármagnsliði var 530 milljónir en 517 milljónir í Garðabæ. Afkoma Vestmannaeyjabæjar var rúmlega 620% betri þetta ár en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun Vestmanneyjabæjar. Myndu vextirnir af þessari góðu afkomu ekki duga til að greiða niður þessi frístundakort?
�?g held að allir bæjarbúar efist ekki um ávinning samfélagsins af skipulögðu tómstundastarfi,�?? segir Dóra Björk og bætir við: �??Ef félagið ætti að rukka fyrir kostnaðinn vegna yngri flokka þá yrðu æfingagjöldin árið 2015 rúmlega 170.000. ÍBV hefur undanfarin ár borgað um og yfir 20 milljónir á ári með barna og unglingastarfinu og er það stórt hlutfall af veltu félagsins.
Frístundakortin eru þannig að þau létta undir með foreldrum en þessir peningar eru ekki nýjar tekjur fyrir félagið. �?að skiptir mig litlu máli sem framkvæmdastjóra ÍBV hvort peninganir komi frá bænum eða foreldrum en það skiptir mig miklu máli að við gerum öllum ungmennum kleift að stunda tómstundir óháð fjölskylduaðstæðum því ég tel okkur vera að �??búa til” góða eyjamenn sem hafa gildi félagsins að leiðarljósi í öllu sínu starfi en þau eru heilbrigði, samvinna, barátta og gleði,�?? segir Dóra Björk Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ÍBV.