Sjómannafélag Íslands hefur tilkynnt Samtökum atvinnulífsins að verkfall verði einnig á Herjólfi á föstudögum, frá og með aðfaranótt föstudagsins 21. mars í næstu viku. �?etta kemur fram á
R�?V.is. Hafi samningar ekki tekist þá mun skipið því ekki sigla frá föstudegi til mánudags.
Yfirvinnubann verður áfram á virkum dögum svo Herjólfur getur einungis siglt eina ferð um �?orlákshöfn. Boðað hefur verið til sáttafundar í kjaradeilu undirmanna á Herjólfi klukkan 13 á morgun, föstudag.