Nú rétt í þessu var að ljúka 3. umræðu um lagafrumvarp Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra um lög á verkfall undirmanna Herjólfs. Frumvarpið var samþykkt og er verkfallsaðgerðum undirmanna því frestað til 15. september. �??Með verkfallsaðgerðum er átt við vinnustöðvanir, verkbönn, verkföll og aðrar aðgerðir sem ætlað er að knýja fram aðra skipan kjaramála en lög þessi ákveða,�?? segir í frumvarpinu.
29 þingmenn greiddu með frumvarpinu, 13 á móti og 5 sátu hjá.
Samgönguvandi Vestmannaeyja er því úr sögunni í bili, eða um leið og forseti staðfestir lögin og má reikna með að það gerist strax í fyrramálið. �?að má því búast við að Herjólfur sigli samkvæmt áætlun strax á morgun, miðvikudag.