Nú virðist fátt geta komið í veg fyrir verkfall háseta, bátsmanna og þerna um borð í Herjólfi. Boðað hefur verið til verkfalls frá og með morgundeginum, miðvikudeginum 5. mars. Verkfallið hefst klukkan 17:00 og stendur til klukkan 8:00 alla virka daga, auk þess sem ekkert verður unnið um helgar. �?etta þýðir að í besta falli verða þrjár ferðir á virkum dögum í Landeyjahöfn og engin laugardaga og sunnudaga. Í versta falli verður ein ferð í �?orlákshöfn alla virka daga en engin á laugardögum og sunnudögum.
Eins og gefur að skilja þýðir þetta verulega röskun í samgöngum milli lands og Eyja enda flýgur Flugfélagið Ernir ekki áætlunarflug milli lands og Eyja á laugardögum og því mun aðeins Víkingur sinna samgöngum milli lands og Eyja á laugardögum en Víkingur tekur rúmlega 60 farþega í hverja ferð og enga bíla.
Í tilkynningu frá Eimskip kemur fram að Sjómannafélag Íslands fer með samningsumboð starfsmanna skipsins en að Samtök atvinnulífsins fari með samningsumboð fyrir hönd Eimskips. �??Sjómannafélag Íslands hefur í kröfugerð sinni krafist kauphækkana sem eru úr öllum takti við það sem aðilar vinnumarkaðarins hafa samið um á síðustu mánuðum til að tryggja stöðugleika, halda niðri verðbólgu og auka kaupmátt,�?? segir í tilkynningu frá Eimskip.
�??�?ann tíma sem boðað verkfall Sjómannafélags Íslands stendur yfir mun Herjólfur sigla skerta áætlun og óvíst hve mikið Herjólfur og Víkingur munu geta siglt til Landeyjahafnar en það verður gert eins og aðstæður leyfa. �?að er ljóst að þessar aðgerðir Sjómannafélags Íslands munu valda óþægindum fyrir Vestmannaeyjinga. Eimskipafélagið mun gera sitt allra besta til að tryggja að samgöngur og vöruflutningar verði viðunandi með öllum mögulegum leiðum.�??