Vestmannaeyjabær með móttöku í kvöld eftir seinustu ferð
Í Vestmannaeyjum renna oft upp stórir dagar á íþróttasviðinu. Dagurinn í dag er þegar orðinn stór og getur hæglega orðið einn af þeim stærri. Strákarnir okkar mæta í kvöld frábæru liði Hauka. Viðureignin hefur verið stórkostleg og ekki er að efa að leikurinn í kvöld verður það einnig.
�?skubuskuævintýri
Að sumu leyti er árangur strákanna líkur �?skubuskuævintýri. �?eir eru litli aðilinn sem eftir erfiðan tíma er nú að blómstra. Sjálfur veit ég sem er að svona árangur gerist ekki af sjálfu sér. Á bak við þennan árangur er markvisst uppbyggingastarf til margra ára. �?rautseigja í gegnum erfiðan tíma, stefnubreyting, blóð, sviti og tár. �?essi árangur er reistur á mörgum herðum í gegnum langan tíma. Leikmennirnir hafa síðan með blöndu af ótrúlegum hæfileikum, mögnuðum persónuleikum og gríðarlegri vinnusemi tekið þetta upp á efsta stig íslenskra íþrótta. �?ar skiptir ekki litlu sá hugur og sú færni sem Arnar og Gunnar þjálfarar koma með að borðinu sem og vinnusemi ráðsins og stuðningur Eyjamanna.
Sérstaða Vestmannaeyja
Vestmannaeyjar eru sérstakt samfélag. Í sérstöðunni eru fyrst og fremst kostir. Samheldnin, samhugurinn og óendanlegur vilji til að berjast fyrir hagsmunum Vestmannaeyja eru að mörgu leyti hornsteinar samfélagsgerðarinnar. Dagurinn í dag ber þess skýr merki.
Allt á fullu í Eyjum
Í allan dag er Herjólfur þéttbókaður. Atvinnurekendur hafa gefið starfsmönnum orlof, Framhaldsskólinn hliðrar til fyrir nemendum, Eimskip gefur frítt í skipið, fjölskyldur hjálpast að við að skipuleggja strandhögg í Hafnarfjörð, allir gera allt sem þeir geta til að styðja sitt lið.
Ábyrgð okkar
Á sama máta eru gestgjafar okkar í Hafnafirði í óðaönn að skipuleggja sig og kappkosta að styðja sitt lið. Fyrir því eigum við að bera virðingu. Í mörgu fé er misjafn sauður, það á við um okkur sem hjörð rétt eins og gestgjafa okkar. Ef einhver verður var við slíkt í kvöld eigum við að mæta því með bros á vör og virðingu fyrir liðinu okkar og merki ÍBV. Í kvöld komum við fram fyrir hönd ÍBV og Vestmannaeyja. �?ví fylgir ábyrgð.
Ferskur blær
Stuðningsmenn ÍBV með Hvítu riddarana okkar í broddi fylkingar hafa vakið gríðarlega og verðskuldaða athygli fyrir gleði og kapp. Innkoma þeirra í íþróttalífið er ferskur blær sem peyjarnir í liðinu hafa nýtt sem vind í seglin. �?eir eru okkur hinum fyrirmynd um hvernig eigi að standa með sínu liði. �?að á að vera á forsendum gleðinnar og virðingu fyrir íþróttinni.
Móttaka
Vestmannaeyjabær er peyjunum okkar afar þakklátur fyrir frammistöðuna. Hróður þeirra er hróður okkur allra. Við erum stuðningsmönnum sem fylgja liðinu í gegnum súrt og sætt einnig afar þakklát. �?ess vegna mun Vestmannaeyjabær bjóða til móttöku á Básaskersbryggju í kvöld þegar Herjólfur kemur úr seinustu ferð. Sýnum hetjunum okkar þakklæti og mætum í kvöld niður á Herjólfsbryggju. �?g er sannfærður um að bikarinn verður með í för.
Áfram ÍBV
Elliði Vignisson
bæjarstjóri

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.