Á nýliðnu ári var 87.551 tonni landað í Reykjavíkurhöfn og er hún að venju sú höfn þar sem mestum botnfiskafla er landað. Lítillegur samdráttur var þó milli ára eins og undanfarin ár eða um 241 tonn sem samsvarar 0,3% samdrætti. �?rátt fyrir þetta ber Reykjavíkurhöfn höfuð og herðar yfir aðrar löndunarhafnir hér á landi þegar horft er til löndunar á botnfiski. Sú höfn sem kemur næst er Grindavíkurhöfn með 46.370 tonn og varð aukning þar um ein 10,9% eða um rúmlega 4,5 þúsund tonn. Vestmannaeyjar koma í þriðja sæti en 33.794 tonnum af botnfiski landað og heldur höfnin þriðja sætinu áfram en höfnin var þar einnig árið 2014.
Samdráttur var víða um land. Mestur var hann í magni talið á Djúpavogi eða um 6,6 þúsund tonn og mest hlutfallsleg aukning var á Hofsós um 148% eða úr 474 tonnum 2014 í 1.175 tonn 2015.
Lista yfir tíu mestu löndunhafnirnar á síðasta ári má sjá hér fyrir neðan ásamt því í hvaða sæti þær voru á fyrra ári.