Vestmannaeyjar - Grænt ljós
Myndir/aðsendar.
Johann Halld Min

Aðsend grein

Jóhann Halldórsson

Íris bæjarstjóri undirritaði í vikunni og staðfesti deiluskipulag fyrir nýtt baðlón og hótel Lava Spring. Senn fer í gang uppbygging stærsta og metnaðarfyllsta ferðaþjónustuverkefni í Vestmannaeyjum frá upphafi.

  • 1500fm baðlónScreenshot
  • 90 herbergja hótel
  • 50 störf hið minnsta auk afleiddra starfa

Sennilega framkvæmd upp á margra milljarða.

Áhrif á efnahag og atvinnulíf samkvæmt skýrslu Alta.

“Skipulagsáætlanirnar taldar hafa veruleg og jákvæð áhrif á efnahag og atvinnulíf”.

Það er því áhugavert að skyggnast inní komandi framtíð og átta sig betur á hvað er í vændum.

Ágætt er þá að líta til uppbyggingar Skógarbaðanna sem nú er í stækkunarferli og hafa skrifað undir samning með Íslandsbanka um uppbyggingu 120 herbergja hótels.

Skógarböðin munu í framhaldi skapa 120 ársstörf !

Enn nærtækara er að líta á nýlega uppbyggingu. Baðlóns við Bláskógarbyggð þar sem fyrsta skóflustunga var gerð í mars 2025.

Einungis 18 mánuðum seinna eftir smá tafir en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir 14 mánaða framkvæmdatíma sköpuðust 50 ný störf !

Földi afleiddra starfa og tekna skapast að auki við svona framkvæmd sem mun skila sér ríkulega til bæjarfélagsins og bæjarsjóðs.

Þetta verður svo sennilega stærsti ferðamannasegull Eyjanna ef eitthvað er að marka höfuborgarsvæðið en þar kom í ljós að Sky Lagoon er helsti segullinn á höfuðborgarsvæðisins og toppar þar t.a.m. Hallgrímskirkju og Hörpuna !

Lengra ferðamannatímabil

Það sem skiptir enn meira fyrir samfélagið og ferðaþjónustuna í heild er að þessi framkvæmd er líkleg til að lengja ferðamannatímabilið  á eyjunni og auka þar með rekstarskilyrði og verðmætasköpun annara fyrirtækja í greininni.

Hvort heldur þá veitingstaðir, fyrirtæki í afþreyingarþjónustu, Eldheimar, Herjólfur o.fl..

Þessu til hliðsjónar er ágætt að rifja upp hvað gerðist á Húsavík.

Áður fyrr lagðist ferðaþjónustan í dvala yfir vetrarmánuðina ekki ósvipað og gerist nú í Eyjum.

Með tilkomu opnun Sjóbaðanna á Húsavík haustið 2018 breyttist staðan umtalsvert og farið var að markaðsetja rómantískar helgar með yfirskriftinni “Huggó á Húsavík” yfir vetrarmánaði í samstarfi við ferðaþjónustuaðila á svæðinu með þeim árangri að helgarnar sem áður stóðu auðar fylltust af lífi og hótel á svæðinu urðu meira og minna uppbókuð!

Hvort það er svo rómantískt eða ekki…

Er ekki erfitt að sjá fyrir sér að geta legið í hlýju baðlóni Lava Spring að vetrarlagi þegar að sólin hefur sest, og virt fyrir sér stórbrotnu útsýni yfir Klettsvíkina og Eyjafjallajökul með himininn dansandi af norðurljósum.

Kælt sig svo eilítið niður með því að fá sér ískaldan sopa sem hefur verið kældur niður með litlum  Eyjafjallakristölum (klökum).

Innilega til hamingju með þennan merka áfanga Eyjamenn og þessa glæsilegu uppbyggingu sem nú fer senn að hefjast.

 

Jóhann Halldórsson

Nýjustu fréttir

Á rauðu ljósi í Reykjavík
Elmar kom að tólf mörkum fyrir Nordhorn
Íslensku stelpurnar töpuðu gegn Svartfjallalandi
Draumurinn rættist á 100 ára afmæli – Taflfélag Vestmannaeyja Íslandsmeistari
Andlát: Einar Birgir Sigurjónsson
Vestmannaeyjar – Grænt ljós
Dramatískur sigur hjá Taflfélagi Vestmannaeyja – úrslitin ráðast í dag
Fólk en ekki flokka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.