Vestmannaeyjar eru verðmætasta verstöð Íslands og það er ekki ætlast til að menn séu að spranga á milli lands og eyja í tíma og ótíma. Í mesta falli einu sinni á ári til að kaupa sér ný föt. Og það er ekki heillavænlegt að láta einhverja ferðamannagosa trufla vinnandi stéttina í Vestmannaeyjum við störf sín við að auka gjaldeyristekjur Íslands. Loka á flugvellinum algjörlega og senda farþegaskip til Vestmannaeyja einu sinni ári og flytja eyjaskeggja til lands til fatakaupa. Fimmfalda verður í lögregluliði Reykjavíkur þegar liðið leggur að bryggju í Reykjavík og ekki má hleypa liðinu í land nema í hollum. Setja verður útgöngubann á íbúa Reykjavíkur þennan dag, því hætta er á farsóttum og því að Reykjvíkingar haldi að gerð hafi verið innrás í landið. �?eir einu sem undanþegnir verða útgöngubanninu verða rakarar og snyrtifræðingar sem þjónusta eiga eyjamennina. �?egar eyjamennirnir yfirgefa síðan borgina að loknum þessum sólahring, þá verður að sótthreinsa alla borgina og setja verður farþegaskipið í brotajárn vegna hættu á farsóttum. Við heimkomuna til eyja verður að leita vandlega á öllum, til að koma í veg fyrir að verstöðvarfólkið hafi ekki haft neitt með sér, sem gæti truflað þá við að skapa þjóðinni gjaldeyri. Og svo hefst venjulegur dagur í lífi Vestmannaeyinga og þeir ganga glaðir til vinnu og eru þakklátir fyrir þennan stórkostlega frídag og bíða glaðir næsta árs. Vestmannaeyjar lengi lifi sem verðmætasta svæði Íslands.





