Hverju skyldi það nú sæta að við Vestamannaeyingar skulum þurfa að lesa eða hlusta á alla fréttamiðla þessa lands um að hér sé hæðsta glæpatíðni á öllu landinu. Mín skoðun er sú að ef okkar eigin vefmiðlar (þá á ég við eyjafréttir.is og eyjar.net) myndu slaka aðeins á í umfjöllun á því hvaða útköllum lögreglan sé að sinna hverju sinni, þá myndi þessi umfjöllun minnka. Ég er ekki að segja að það sé vandi málsins að öllu leiti en vissulega spilar það stórt hlutverk.