�?riðjudaginn 23. janúar sl. voru 45 ár liðin frá því gos hófst á Heimaey. Af því tilefni var haldin svokölluð Vetrarnótt þar sem bæjarbúum gafst tækifæri til að minnast þessarar örlagaríku nætur en fjölmargir viðburðir voru boði. Í Eldheimum var forsýning á myndinni Eldheimar verða til eftir Jón Karl Helgason. Kristín Jóhannsdóttir kynnti nýútkomna bók sína Ekki gleyma mér og í Landakirkju stýrðu sr. Guðmundur �?rn og sr. Viðar Stefánsson hugvekju ásamt því að Lúðrasveit Vestmannaeyja spilaði vel valin lög. Lá leiðin síðan í gömlu Höllina við Vestmannabraut þar sem Karlakór Vestmannaeyja tók nokkur lög og sömuleiðis Ágústa Eva Erlendsdóttir, ásamt þeim Kjartani Valdimarssyni og �?skari Guðjónssyni. Kom það síðan í hlut Blítt og létt hópsins að halda uppi sannri Eyjastemningu áður en dagskránni lauk.