Við viljum svör
�?að vakti athygli og furðu mína og fjölmargra annarra nú á dögunum þegar bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum lýsti því yfir að samgöngu – og heilbrigðismál væru ekki meðal stóru málanna í Vestmannaeyjum þar sem þau væru alfarið á borði ríkisins. �?g er í raun hissa á því að maður í stöðu bæjarstjóra vogi sér að gengisfella með þessum orðum sínum þá miklu baráttu sem við Vestmannaeyingar höfum háð í langa tíð til þess að fá samgöngu- og heilbrigðismál í lag. En hann um það. Hann verður að fá að hafa sína skoðun og við hin að velta henni vandlega fyrir okkur og spyrja okkur hvort við séum henni sammála eða ekki.
Laugardaginn 31. maí verður kosin ný bæjarstjórn og ég held að á þeirri rúmu viku sem eftir er fram að kosningum verði að gera þá skýlausu kröfu til frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjumstyðji að þeir skýri fyrir kjósendum með óyggjandi hætti hvaða ákvarðanir flokksbræður þeirra í ríkisstjórn hafa tekið um framtíð samgöngu- og heilbrigðismála í Vestmannaeyjum. �?g segi �??hafa tekið�?? vegna þess að ég er nær fullviss um að ákvarðanir hafa verið teknar. Kannski eru það ákvarðanir sem koma sér illa til birtingar núna rétt fyrir kosningar.
�?ess vegna er það annars vegar krafa Vestmannaeyinga sem eru að ganga til bæjarstjórnarkosninga að við verðum upplýst um nú í vikunni fyrir kosningar hvort Landeyjahöfn eigi áfram að vera einungis sumarhöfn eða hvort gera eigi eitthvað raunhæft til að bæta þar úr. �?etta er einfaldlega stórmál, hvað svo sem bæjarstjórinn segir, og mikilvægt að við vitum um hvað fram undan er.
Hins vegar er það krafa Vestmannaeyinga að við verðum upplýst um hvað ákveðið hefur verið með sjúkrahúsið. �?að er einnig stórmál, hvað svo sem bæjarstjórinn segir. Um framtíð sjúkrahússins verður einnig að upplýsa okkur nú í vikunni fyrir kosningar.
�?ví fyrr sem þessi svör berast okkur því betra. En við eigum skilin greinargóð svör án málalenginga eða útúrsnúninga.
Ragnar �?skarsson

Nýjustu fréttir

Gul viðvörun fyrir allt landið
Ljósmyndakeppni fyrir börn og ungmenni
Íþróttamaður mánaðarins – Birna María
Þurfa Eyjamenn að taka málin í sínar hendur?
Framtíðarsýn – tökum samtalið
Vestmannaeyjar úti í kuldanum í fjárlagafrumvarpi 2026
Hátt í 50 metrar á Stórhöfða
Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.