Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum funduðu í dag vegna loðnuveiðibannsins. Sjávarútvegsráðherra ætlaði að sitja fundinn en komst ekki vegna ófærðar. Fundurinn var hins vegar líflegur og skiptust menn á skoðunum en allir voru þó sammála um alvarleika bannsins. Fundurinn samþykkti ályktun þar sem meðal annars þess er krafist að í framtíðinni verði gefinn út jafnstöðukvóti, eða lágmarkskvóti í upphafi loðnuvertíðar sem fær að standa. Loðnuleit eigi svo að miðast við að auka þann kvóta en ekki eins og nú þegar kvótinn er tekinn af útgerðum. Ályktun fundarins má lesa hér að neðan.