Vinnslustöðvarmótið í skák fer fram næstkomandi helgi en nú þegar hafa hátt í tuttugu keppendur skráð sig til leiks. Mótið hefst föstudaginn 3. september og lýkur svo daginn eftir en mótið er haldið í Skáksetrinu að Heiðarvegi í Vestmannaeyjum. Tefldar verða sjö umferðir og verður mótið blandað með at- og kappskákum. Enn er hægt að skrá sig til leiks í mótinu hjá forráðamönnum Taflfélags Vestmannaeyja.