Það heyrist oft hátt í Eyjamönnum. Það hátt að latteþambandi landkröbbum uppi á landi svelgist stundum á froðunni. Þannig hafa viðbrögð Vestmannaeyjabæjar vegna kaupa Síldarvinnslunnar á Berg-Huginn ekki farið framhjá neinum en bæjaryfirvöld hafa ákveðið að láta reyna á forkaupsréttarákvæði 12. gr. laga um stjórn fiskveiða vegna sölunnar.