Egill Arngrímsson, þjónustustjóri VÍS í Vestmannaeyjum, afhenti í morgun leikskólabörnum í Vestmannaeyjum endurskinsmerki. Egill fór á leikskólanna Sóla og Kirkjugerði og einnig í Hamarsskóla þar sem ný 5 ára deild tók til starfa í haust. Ferð Egils tengist herferð VÍS sem kallast „Láttu sjá þig“ og afhenti Egill 200 endurskinsmerki í morgun.