Vodafone gangsetti 4G í Eyjum
Á dögunum gangsetti Vodafone fyrstu 4G senda félagsins í Vestmannaeyjum. Bættust Eyjar þar með við ört stækkandi 4G kerfi Vodafone um land allt. Tímabundnum 2G og 3G sendum hefur einnig verið bætt við á svæðinu, til að tryggja viðskiptavinum sem best net- og símasamband yfir helgina. �?að ætti því enginn að þurfa að vera í slæmu netsambandi í Herjólfsdal.
4G sendar Vodafone í Vestmannaeyjum eru tveir. Varanlegur sendir hefur verið settur upp í Hánni. Færanlegur 4Gsendir verður einnig í Herjólfsdal yfir þjóðhátíð og tryggir gestum háhraðasamband í dalnum. Auk þessa verða einnig tímabundnir viðbótar-sendar fyrir bæði 2G og 3G í Eyjum yfir þjóðhátíð, m.a. á sviðinu í Herjólfsdal, til að mæta álagi ef þörf krefur.
Sum kunnugt er jafnast flutningshraði 4G tengingar á við góða heimanettengingu. �?etta þýðir sem dæmi að greiðlega er hægt að streyma tónlist og myndböndum, spila tölvuleiki og fylgjast með fréttum á ferð um landið Allt sem þarf er 4G sími eða einfaldur netbúnaður sem getur tengt eitt eða fleiri tæki við 4G netið.
4G kerfi Vodafone er í örum vexti þessa dagana. Auk Vestmannaeyja nú er kerfi félagsins einnig orðið aðgengilegt á á Siglufirði, í Eyjafirði og Skagafirði, á Egilsstöðum, Húsavík, í helstu sumarhúsabyggðum á Suðurlandi og í Borgarfirði, auk höfuðborgarsvæðisins. �?að ætti því að vera auðsótt mál að vera í háhraðasambandi í sumarfríinu.�??
(frétt frá Vodafone)

Nýjustu fréttir

Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi
Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.