Einmuna veðurblíða hefur verið hér í eyjum undanfarna, daga bæði sólríkt og hlýtt. Kokkurinn á Hraunbúðum, og hans fólk tók sig til í góða veðrinu og græjuðu vöfflujárn og annað sem til þurfti og brunuðu út á sólapall, þar sem vöfflurnar voru bakaðar, settur á þær rjómi og sulta og heimilisfólkið skundaði svo út í góða veðrið og naut veitinganna undir sólbjörtum himninum.