Í síðustu viku tóku krakkarnir í Volcano Seafood þátt í nýsköpunarkeppninni University Startup World Cup í Kaupmannahöfn en hópurinn fékk þátttökurétt eftir að hafa sigrað nýsköpunarkeppni Háskólans í Reykjavík í vor. �?r Volcano Seafood hópnum fóru þau Hallgrímur �?órðarson, Dagur Arnarsson, Guðný Bernódusdóttir og Svanhildur Eiríksdóttir en Gunnar Heiðar �?orvaldsson var eftir í Eyjum enda háannatími í fótboltanum um þessar mundir. Fóru fjórmenningarnir út 16. september og komu til baka sl. laugardag. Blaðamaður hafði samband við Svanhildi Eiríksdóttur og ræddi nánar við hana um keppnina.
Hver var tilgangurinn með ferðinni? �??�?egar við sigruðum nýsköpunarkeppnina við Háskólann í Reykjavík fengum við þátttökurétt á þessa keppni, University Startup World Cup, eða Venture Cup eins og það var kallað. Fórum við því fyrir hönd HR með nýja fyrirtækið okkar og viðskiptahugmynd til að keppa um hvaða skóli/land væri með bestu startup hugmyndina,�?? segir Svanhildur.
Um alþjóðlega keppni var að ræða þannig að hóparnir voru margir og hugmyndirnar góðar. �??Standardinn þarna var gríðarlega hár og metnaðurinn og viljinn hjá öllum sveif þarna um. Andrúmsloftið milli liða var mjög skemmtilegt og allir opnir fyrir að kynnast nýju fólki og nýjum hugmyndum. Meðal annars voru þarna krakkar frá �?kraínu sem voru með ennisband sem greindi yfirvofandi flog hjá flogaveikum. Inni í hárbandinu var nemi sem greindi heilabylgjur og þess háttar og gat því sagt til um með nokkurra mínútna fyrirvara ef flog hjá flogaveikum einstaklingi var aðkomandi. Sendi hárbandið þá skilaboð inn á app í símanum hjá viðkomandi og nánustu ættingjum að flog væri í aðsigi.�??
Góð viðbrögð við snakkinu
Hvernig viðbrögð fenguð þið við bjórsnakkinu? �??Við fengum mjög góð viðbrögð við snakkinu okkar. Við fórum með tvær tegundir út til þess að smakka, BBQ chips og Fire chips (chilli). Fólk var hissa yfir því hvað varan var allt öðruvísi á bragðið heldur en hún lyktaði og voru flestir sem smökkuðu frekar hissa yfir því að þeim líkaði varan. Fólk hafði orð á því að bjór yrði líklega þeirra val á drykk ef þau væru að smakka vöruna í fyrsta skiptið og sagði það þyrsta í bjór við að borða snakkið okkar,�?? segir Svanhildur.
Margar góðar hugmyndir
Aðspurð hvað þau hafi verið að gera sagði Svanhildur fyrstu dagana hafa aðallega farið í fyrirlestra og áætlanagerð fyrir stóru dagana tvo, miðvikudaginn og fimmtudaginn. �??Miðvikudaginn 20. sept fékk hvert lið bás þar sem þau fengu að sýna og kynna sína vöru. Einnig var lítil aukakeppni þann daginn milli liðanna frá Norðurlöndunum en þar kepptum við innbyrðis í svokölluðum pitch-battle. Keppnin var á þá leið að hvert lið var með tilbúnar glærur og fjögurra mínútna pitch eða kynningu um sína vöru og síðan var það val dómaranna hvaða hugmynd þeim leist best á,�?? segir Svanhildur en sigurvegari þeirrar keppni kom frá heimalandinu sjálfu. �??�?að var strákur frá Danmörku með fyrirtækið sitt, Particle 3D sem sigraði þá keppni en hugmynd hans gekk út á að 3D prenta bein fyrir sjúklinga sem hafa orðið fyrir skyndilegum áverkum eða krabbameini í beini og beinmerg.�??
Aðal dagurinn var síðan á fimmtudeginum en þar var hópurinn aftur með kynningu fyrir dómarana. �??Við vorum aftur með fjögurra mínútna kynningu fyrir dómarana, gáfum þeim snakk og þeir höfðu síðan tíu mínútur til að spyrja okkur um allt milli himins og jarðar. �?llum liðum var skipt í flokka eftir því sem hentaði þeirra vöru, hvort þau voru á heilbrigðisvísindasviði, verkfræðisviði, hátæknisviði o.s.frv. Á föstudeginum var síðan valið besta liðið úr hverjum flokk fyrir sig og hafði það lið möguleika á að keppa um aðalverðlaun keppninnar sem voru 25.000 Bandaríkjadalir. Sigurvegararnir í okkar flokk voru strákar frá Finnlandi sem muldu niður grænmeti og breyttu því í duftform svo hægt væri að neyta grænmetisins í drykkjarformi t.d. út í prótein sjeika eða ávaxtasafa þar sem mikið af fólki nú til dags borðar ekki nóg grænmeti,�?? segir Svanhildur.
Aðal sigurvegarar keppninnar voru þó tveir strákar frá Bretlandi með fyrirtækið sitt RAB Microfluidics. �??�?eir fundu lausn til að ástandsgreina iðnaðarvélbúnað út frá olíusýnum. Eitthvað sem þarf að gera á tilraunastofum í dag en þeir fundu lausn til að gera það á staðnum með litlu tæki og spara þannig mikinn tíma, fjármagn og bæta nýtingu tækja. Við unnum því miður ekki til neinna verðlauna, en vorum nálægt þvi í Social Media Group þar sem við lentum í öðru sæti, tæpum 200 atkvæðum á eftir efsta liðinu, en öll vikan fer klárlega í reynslubankann hjá okkur og við skemmtum okkur konunglega,�?? segir Svanhildur.
�?víst með næstu skref
Hver verða næstu skref ykkar í Volcano Seafood? �??Næstu skref okkar verða að setjast niður og ákveða hvað við viljum gera í framhaldinu. Við höfum klárlega fundið fyrir áhuga á vörunni okkar bæði hérna heima í Eyjum og frá fólki ofan af landi sem er mjög gott. Tíminn verður bara að fá að leiða það í ljós hvað er næst á dagskrá hjá okkur,�?? segir Svanhildur og nýtir tækifærið til að þakka styrktaraðilum hópsins.
�??Við erum gríðarlega þakklát fyrir alla þá sem hafa aðstoðað okkur í gegnum tíðina, allt frá því að hafa verið á frumraunastigi með vöruna okkar, til þess að hafa farið á heimsmeistarakeppni í nýsköpun úti í Danmörku. Ásgeir Jónsson, aðjúnkt námsins, hefur verið okkar hægri hönd ásamt Grími kokk og Halla í Löngu. �?eir þrír hafa verið okkar aðal menn í gegnum súrt og sætt. Einnig fórum við hring í bænum í lok sumarsins áður en haldið var til Danmerkur til þess að athuga hvort fyrirtæki hér hefðu áhuga á að styrkja ferðina okkar til Danmerkur, sem og auglýsingakostnað, framleiðslukostnað og fleira. Viljum við þakka Vestmannaeyjabæ, Ísfélaginu, Vinnslustöðinni, Eyjablikki, Íslandsbanka, Skipalyftunni, Landsbankanum, Eimskip, Háskólanum í Reykjavík, Löngu ehf, Grími kokk, BK gleri, Gilla Foster og Fab lab kærlega fyrir alla aðstoðina á síðastliðnu hálfa árinu og þeirra framlög til okkar. Án ykkar hefðum við ekki getað afrekað allt þetta. Enn og aftur, takk allir!�??