Völlurinn er fljótur að taka við sér við réttar aðstæður
Þó að veðrið bendi ekki til þess, þá eru aðeins tvær vikur þangað til Íslandsmótið í knattspyrnu hefst. ÍBV byrjar á tveimur heimaleikjum, fyrst gegn Fram mánudaginn 2. maí og svo gegn Fylki laugardaginn 7. maí. Nú er hins vegar hvít jörð í Vestmannaeyjum, eins og víða annarsstaðar og talsvert í að Hásteinsvöllur verði leikfær. Kári Þorleifsson, vallarstjóri Hásteinsvallar er þó bjartsýnn í samtali við Vísi.is.