Íslenski landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur að mati danska vefmiðilsins onside.dk ekki staðið sig sem skyldi í fyrstu umferðum dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Hann er í hópi þeirra fimm leikmanna sem taldir eru hafa valdið mestum vonbrigðum það sem af er keppnistímabilinu. Gunnar Heiðar var engu að síður í landsliði Íslands sem mætti Aserbaídsjan í æfingaleik í síðustu viku en náði ekki að skora.