Mynd af bikurum sem veittir voru sem verðlaun til 6. flokks drengja á Orkumótinu í Vestmannaeyjum og til 5. flokks kvenna á TM móti í Vestmannaeyjum hefur farið sem eldur í sinu um Facebook í dag. Framkvæmdastjóri ÍBV segir úrbætur verða gerðar á næsta ári.
Margir hafa furðað sig á stærðarmuninum á bikurunum en bikarinn sem drengirnir hlutu er töluvert stærri en bikarinn sem stúlkurnar hlutu. Sigrún Jóna Hauksdsóttir sem birti myndina segir hana útskýra sig sjálfa. �??�?etta er mjög myndrænt. �?g hefði getað reynt að lýsa þessu í orðum en myndin segir allt sem segja þarf.�??
�??�?að eru ekki kynbundnar ástæður fyrir þessum mun á bikurunum. �?að er einfaldlega þannig að það er ekki sama fólkið sem sér um bæði mótin. Við hins vegar ákváðum strax eftir Orkumótið að gera bragarbót á þessu á næsta ári því við viljum hafa samræmi milli móta því svona er félaginu ekki til sóma og ekki í boði árið 2015,�?? segir Dóra Björk Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri ÍBV.