Elding, félag smábátaeigenda á Vestfjörðum, ætlar að leggja til að skipuð verði nefnd á aðalfundi Landsambands smábátaeigenda sem hafi það hlutverk að ræða við aðila í sjávarútvegi með það að markmiði að komið verði á ráðgefandi nefnd sjómanna sem hafi það hlutverk að gefa árlega rökstudda ráðgjöf um heildarafla samhliða Hafrannsóknastofnun. Með þessu fyrirkomulagi hefur ráðherra tvö ráðgefandi álit við ákvörðun á heildarafla. Annars vegar frá vísindamönnum Hafrannsóknastofnunar og hinsvegar frá reynsluheimi sjómanna.