Aflinn mest þorskur og ýsa
Mynd/ Arnar Berg Arnarsson

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir í heimahöfn í Vestmannaeyjum í gær. Afli Bergs var 68 tonn og afli Vestmannaeyjar 65 tonn. Síldarvinnslan ræddi stuttlega við skipstjórana að löndun lokinni. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að afli þeirra hafi mest verið þorskur og ufsi. „Við vorum að veiðum á Ingólfshöfða og á Breiðamerkurdýpi og það er ekki hægt að vera ósáttur við aflabrögðin. Þetta var fínasti fiskur sem við vorum með,“ segir Jón.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, segir að aflinn hafi mest verið þorskur og ýsa. „Við vorum að veiðum á Ingólfshöfða og Breiðamerkurdýpi og einnig í Sláturhúsinu. Það gekk þokkalega að fiska, þetta var bara fínasta nudd. Við vorum tæplega þrjá og hálfan sólarhring að veiðum. Nú er komin bræla og ég veit ekki hvenær verður haldið til veiða á ný. Vonandi gengur þetta veður fljótlega niður,“ segir Egill Guðni.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.