112-dagurinn verður haldinn um land allt sunnudaginn 11. febrúar nk. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum 112. Númer þetta er samræmt neyðarnúmer í löndum Evrópusambandsins.
Í gegnum þetta neyðarnúmer getur almenningur fengið aðstoð ef það er í neyð eða þarf aðra aðstoð vegna veikinda eða slysa og fá þá leiðbeiningu á fyrstu aðstoð áður en sérhæfð aðstoð berst. �?á er einnig gefið samband við hina ýmsu samstarfsaðila stofnana, félagssamtaka sem annast margvíglega neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu.
Næst komandi sunnudag kl. 14:00 munu ökutæki frá lögreglu, slökkviliði, Björgunarfélagi Vestmannaeyja og sjúkraflutningum aka um bæinn til að vekja athygli á þessum degi.