Hitta vini og fjölskyldu og skemmta sér

Nú styttist í það að brott fluttir eyjamenn og konur sem og aðrir þeir sem ætla að skemmta sér á Þjóðhátíð í eyjum fari að streyma til eyja. Eyjar.net sló á þráðinn til Sigurjóns Lýðssonar og spjallaði stuttlega við hann um hans hlið á Þjóðhátíðinni.

 

Sigurjón Lýðsson eða Don Guiseppa eins og hann kallast af félögum og bræðrum í Mafíu Vestmannaeyja er fyrir löngu farinn að undirbúa sig fyrir Þjóðhátíðina.
En af hverju velur Sigurjón að fara á Þjóðhátíðina “Ég held að það komi bara ekkert annað til greina um verslunarmannahelgi enda borinn og barnfæddur Eyjamaður.”

Sigurjón byrjaði að hlusta á Þjóðhátíðarlögin í kringum 20.júlí en byrjaði að pikka upp á gítar Þjóðhátíðarlögin síðast liðið haust, Sigurjón telur “Lífið er yndislegt” standa upp úr Þjóðhátíðarlögum og einnig eru í uppáhaldi lög eftir Lýð Ægisson föður Sigurjóns og Steina Lýðs bróður hans.

Sigurjón telur að kostir Þjóðhátíðar séu margir og segir Sigurjón að allt sé í raun og veru frábært við Þjóðhátíðina en fyrst og fremst er það að koma heim til eyja, hitta vini og fjölskyldu og skemmta sér.

Þegar Sigurjón er beðinn að segja okkur hvað kemur fyrst í hugann þegar eftirfarandi orð eru sögð:

       Flugeldasýningin: Villi Gumm og eftirminnileg myndataka af sýningunni eitt árið 
       Bekkjarbíll: Á leið í Herjólfsdal fullur tilhlökkunar….eða þreyttur á heimleið 
       Brekkusöngur:Að sitja með ástvinum sínum að syngja…..já og Árni Johnsen með gítarinn.

Þegar Sigurjón er beðinn að koma með eina Þjóðhátíðarsögu kemur örlítið hik á hann en svo byrjar hann:
“Úff það er svo margt sem kemur til greina. Reyndar heyrði ég góða af einni stelpu sem var í dalnum þegar brjálaða veðrið var . Á sunnudeginum var brekkan í dalnum eitt drullusvað og varla stætt þar. En þessi stúlka var ásamt vinkonu sinni, efst í brekkunni, að gera sig klára til að pissa, sem er ekki frásögum færandi nema hvað hún tekur niður brækurnar og er í þann mund að byrja þegar ein af mörgum vindkviðum gera vart við sig. Hún greyið rann því á skemmtaranum niður alla brekkuna og stoppar ekki fyrr en á baki einhvers fjölskylduföður sem var þarna í sakleysi sínu að fara horfa á brekkusönginn. Karlinn svo hissa snýr sér við og þá er hún að brasa við að koma brók upp aftur. Mér finnst þessi vera  nokkuð góð “

 

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.