Sjávarsinfónía á Stokkseyrarbryggju

Ekki viðraði í morgun til tónleikahalds af mannavöldum á Stokkseyrarbryggju en náttúran sjálf bauð til magnaðra tónleika með glæsilegu sjónarspili. �?gir sjávar-konungur stjórnaði öllu saman eins og hann best gerir. Færði hann bryggjuna reglulega á kaf með miklum fyllum þannig að flæddi vel undir bryggjusviðið. Sviðsumgjörðin í bak var ótrúleg þegar Atlantshafið braut á �?jórsárhrauninu […]

Eiður Smári í uppáhaldi

Fæðingardagur: 16.desember 1987.Fjölskylduhagir: �?g er á lausu.Foreldrar: Sigríður Jónsdóttir og Páll Böðvar Valgeirsson. Systkini: Valgeir Matthías, Maríanna og Rakel. Heimili: Á Selfossi. Skólaganga: Stunda nám í FSu. á félagsfræðibraut.Helstu áhugamál: Helstu áhugamál mín eru að ferðast bæði innanlands og erlendis, útivist, tíska, hönnun, hreyfing og vera í faðmi fjölskyldu og vina.Uppáhaldsstaður á Íslandi: Eyjafjöllin og […]

Aðalsveitakeppni og Suðurlandsmót

Í aðalasveitakeppni Bridgefélag Selfoss og nágrennism var pörum skipt tvisvar í sveitir, og úrslitin réðust í pörum. Efstu pör urðu:1. Gunnar H., Stefán og Sigfinnur 2762. Kristján, Vilhjálmur og Helgi G. 2733. Guðmundur, Hörður og Sigurður M. 2534. �?röstur og Ríkharður 2505. Gísli H. og Magnús G. 244Suðurlandsmótið í tvímenning var haldið í Tryggvaskála 3. […]

Herjólfur fer seinni ferð

Klukkan 15.00 var ölduhæð við Surtsey 9,81 metrar og við Bakkafjöru rúmir 7 metrar. Á sama tíma var Suðsuðvestan 24 metra vindhraði á Stórhöfða. (meira…)

Ánægður með nýja stofninn

�?Við fórum í haust norður í Árneshrepp á Ströndum með tvær stórar hestakerrur og ég keypti 64 lömb af frændum sem búa á bænum Melum. Vissi að þar var ræktað fallegt fé,�?segir Sveinn þegar tíðindamaður Sunnlenska sótti hann heim fyrir skömmu.Byggt var nýtt hús fyrir lömbin.�?�?að voru börn og tengdabörn ásamt fleirrum sem komu að […]

Hátíðarhöld í Hrunamannahreppi

Laugardaginn 17. mars verða tónleikar í íþróttahúsinu á Flúðum. Flytjendur verða Karlakórinn Fóstbræður, Karlakór Hreppamanna, Kirkjukór Hrunaprestakalls og Vörðukórinn. Einsöngvari kvöldsins verður �?skar Pétursson og Miklós Dalmay píanóleikari mun frumflytja tilbrigði sitt við stef Sigurðar, Ferskeytlu. Dagskrá sunnudagsins hefst með messu í Hrepphólakirkju. Prestur verður sr. Eiríkur Jóhannsson. Kirkjukór Hrunaprestakalls mun syngja sálmalög eftir Sigurð. […]

Syngur eins og Celine Dion

Fæðingardagur: 23. apríl 1986 Fjölskylduhagir: �?gift og barnslaus. Foreldrar: Gunnvör Kolbeinsdóttir og Garðar Rúnar Árnason. Systkini: Steinar Rafn og Reynir �?ór. Skólaganga: Stúdent af náttúrufræði- og viðskiptabraut frá Fjölbrautaskóla Suðurlands, Grunnskólinn í Hveragerði og síðast en ekki síst, Leikskólinn Undraland, stóð mig þar með stakri prýði í að klippa og líma.Helstu áhugamál: Körfubolti og íþróttir, […]

Herjólfur fór ekki vegna veðurs

Klukkan níu voru sunnan- suðvestan 24 metrar á sekúndu á Suðvesturmiðun en hann á að lægja þegar líður á daginn. Samkvæmt áætlun er seinni ferð Herjólfs frá Eyjum klukkan fjögur í dag. (meira…)

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.