Hátíðarhöld í Hrunamannahreppi

Laugardaginn 17. mars verða tónleikar í íþróttahúsinu á Flúðum. Flytjendur verða Karlakórinn Fóstbræður, Karlakór Hreppamanna, Kirkjukór Hrunaprestakalls og Vörðukórinn. Einsöngvari kvöldsins verður �?skar Pétursson og Miklós Dalmay píanóleikari mun frumflytja tilbrigði sitt við stef Sigurðar, Ferskeytlu.

Dagskrá sunnudagsins hefst með messu í Hrepphólakirkju. Prestur verður sr. Eiríkur Jóhannsson. Kirkjukór Hrunaprestakalls mun syngja sálmalög eftir Sigurð.

Að athöfn lokinni hefst dagskrá í Félagsheimili Hrunamanna þar sem fram koma Kór Flúðaskóla, Kór eldri Hrunamanna, Kirkjukór Hrunaprestakalls og Karlakór Hreppamanna. Nemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga flytja lög Sigurðar og sýndar verða myndir úr lífi og tónlistarstarfi Sigurðar og með því rifjaðar upp gamlar minningar.

Samtals verða flutt þessa daga um 50 verk, allt frá sálmalögum til magnþrunginna tónverka, og sýnir það hve afkastamikilð skáld og tónlistamaður Sigurður Ágústsson var.

Tónlistarstjóri hátiðarinnar er Edit Molnár.

Nýjustu fréttir

Bæjarbúar hvattir til að tryggja lausamuni
Endurskoða þarf hlutverk ríkisfjölmiðilsins frá grunni
ÍBV B mætir Herði í Powerade bikarnum
Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Skammt í farþegametið í komu skemmtiferðaskipa
Samfylkingin stærst en Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið
Stór ágústmánuður að baki hjá Herjólfi
Sænski sendiherrann genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.