Skrifar frá hjartanu

Fjölmiðlakonan Edda Andrésdóttir sendir frá sér bókina Í öðru landi í næsta mánuði. Þar segir hún frá reynslu sinni af því þegar faðir hennar veiktist af afbrigði Alzheimers-sjúkdómsins og lést á innan við ári. „Ég held að ef fólk skrifar á annað borð, þá vinnur það svolítið úr sínum tilfinningum með því að skrifa. Þessi […]

Jan Mayen

Jæja brælan er ekkert að ganga niður þarna úti á djúpinu og á að vera bræla þar fram að helgi. Við sigldum nær landi síðustu nótt og enduðum í Héraðsflóanum og vorum að gæla við að eitthvað væri af síld þar.Við urðum eitthvað varir en þar sem þetta var allt í yfirborðinu og Huginn VE […]

Glitnir: TM-hlutur of dýr

Verðið sem Glitnir greiðir fyrir um 40% hlut í Tryggingamiðstöðinni er um 15% hærra en lokagengi í Kauphöllinni í gær. Eins og fram kom í fréttum fyrr í dag hefur Glitnir keypt tæplega 40% hlut í Tryggingamiðstöðinni fyrir um 20 miljarða króna. Samkvæmt tilkynningu frá Glitni stendur til að selja hlutinn áfram til annarra fjárfesta. […]

Aumingja Samfylkingin

Fyrir kosningar hafði Samfylkingin uppi stór orð um allt sem hún ætlaði að gera ef hún bara kæmist í ríkisstjórn.  Eftir kosningar varð ljóst að það eina sem hún hafði í raun á stefnuskrá sinni var að komast í ríkisstjórn.  Fyrir kosningar hafði ég töluverðar áhyggjur af því hvernig flokknum og formanni hans myndi farnast […]

Margrét Lára langmarkahæst

Margrét Lára Viðarsdóttir er langmarkahæsti leikmaðurinn í Landsbankadeild kvenna. Margrét hefur skorað þrjátíu mörk í deildinni í þeim þrettán leikjum sem Valur hefur leikið en í kvöld gerði hún fjögur þegar Valur vann 11-0 útisigur á FjölniHrefna Huld Jóhannesdóttir úr KR og Nína Ósk Kristinsdóttir úr Val koma á eftir Margréti í markaskorun en þær […]

Guðbjörg Matthíasdóttir ofl. selja í TM

Glitnir hefur samið um kaup á 39,8% hlut í Tryggingamiðstöðinni hf. (TM). Seljendur eru félög í eigu Guðbjargar M. Matthíasdóttur, Sigríðar E. Zoéga, Geirs G. Zoéga auk aðilar þeim tengdum. Eignarhaldsfélagið Kristinn ehf. sem er í eigu Guðbjargar M. Matthíasdóttur mun eiga 9% eignarhlut í TM eftir viðskiptin. Gengi bréfa TM í viðskiptunum er 46,5 […]

Bjóða á börnum í Vestmannaeyjum frístundakort og lækka dagvistargjöld.

www.eyjar.net heldur áfram að heyra í valinkunnum Eyjamönnum varðandi hvaða möguleika þeir sjá í stöðunni með söluhagnaðinn af Hitaveitu Suðurnesja. Að þessu sinni heyrðum við í Guðrúnu Erlingsdóttur fyrrverandi bæjarfulltrúa í Vestmannaeyjum. Ef þú værir bæjarstjórnin hvað myndirðu leggja til að gert yrði við þessa 3.6 milljarða ?  Í fyrsta lagi að flýta sér hægt […]

Pysjurnar að koma

Svo virðist sem lundapysjurnar séu að yfirgefa holurnar þessa dagana. Þær eru talsvert seinna á ferðinni en í meðalári en þær pysjur sem hafa verið vigtaðar og mældar á Fiskasafninu hafa verið í nokkuð góðu ástandi. Þær eru talsvert þyngri en pysjurnar sem voru að finnast í fyrra og ekki er mikið um dúnaðar pysjur. […]

Guðbjörg Matthíasdóttir o.fl. selja hlut sinn í Tryggingamiðstöðinni

Glitnir hefur samið um kaup á 39,8% hlut í Tryggingamiðstöðinni hf. (TM). Seljendur eru félög í eigu Guðbjargar M. Matthíasdóttur, Sigríðar E. Zoéga, Geirs G. Zoéga auk aðila þeim tengdum. Eignarhaldsfélagið Kristinn ehf. sem er í eigu Guðbjargar M. Matthíasdóttur mun eiga 9,0% eignarhlut í TM eftir viðskiptin. Gengi bréfa TM í viðskiptunum er 46,5 […]

Flugfélag Íslands hækkar ekki verð á flugi til eyja.

Í fjölmiðlum að undaförnu hefur verið fjallað um hækkun á fargjöldum innanlands hjá Flugfélagi Íslands til ákveðina áfangastaða á flugleiðum þeirra. Flugfélag Íslands hóf innanlandsflug að nýju til eyja í lok síðasta árs þegar Landsflug hætti með skömmum fyrirvara öllu flugi á leiðinni RVK – VEY – RVK. Samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands þá er ekki […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.