Kom fram í Reykjavík heill á húfi

Maður sem leitað var að í gærmorgun í tengslum við umferðarslys sunnan við Stóru Laxá er kominn fram. Björgunarsveitir voru í morgun ræstar út í uppsveitum Árnessýslu til leitar að ökumanni bifreiðar sem fannst í skurði skammt sunnan við Stóru Laxá. (meira…)

Brotist inn í verslunina Click

Brotist var inn í verslunina Click við Eyraveg á Selfossi í nótt. Lögreglu barst tilkynning um rúðubrot klukkan hálf fimm í morgun. Ljóst er að farið var inn og rótað í vörum verslunarinnar sem selur tískufatnað fyrir unga hjólabrettaáhugamenn. Þetta kemur fram á mbl.is í morgun. (meira…)

Fylltar paprikur

Það kemur að því í lífi hvers manns að hann stendur fyrir framan spegilinn og sér að árangurinn í söfnun aukakílóa er langt yfir meðallagi. Eftir sumarið á Íslandi þá stóð ég mig að því að hafa tekið með mér út fleiri kíló á líkamanum en þegar ég fór til Íslands. Ég ákvað að reyna […]

Ég hef hins vegar lengi haft þá á tilfinningunni að ríkisstjórnin og ráðamenn samgöngumála hafi fyrir löngu dæmt jarðgöng úr leik

Alþingi hefur tekið til starfa að nýju eftir stutt sumarþing og nú fá nýkjörnir þingmenn að láta ljós sitt skína. Staða suðurkjördæmis er sterkari nú en hún var fyrir síðustu kosningar þegar kjördæmis hafði einungis einn ráðherra í ríkisstjórn. Nú eru tveir ráðherrar úr kjördæminu og sex þingmenn kjördæmisins teljast stjórnarþingmenn. www.eyjar.net sendu nokkrar spurningar á þingmenn […]

Fimm af níu þjálfurum völdu Margréti Láru besta leikmanninn

Fréttablaðið bað þjálfara Landsbankadeildar kvenna til þess að velja besta leikmann deildarinnar í sumar. Þrír leikmenn fengu atkvæði sem besti leikmaðurinn og fimm leikmenn fengu atkvæði sem sá efnilegasti. Rakel Hönnudóttir fékk flest atkvæði sem efnilegasti leikmaðurinn. Valskonan Margrét Lára Viðarsdóttir er besti leikmaður Landsbankadeildar kvenna í sumar að mati níu þjálfara deildarinnar en Fréttablaðið […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.