Fimm af níu þjálfurum völdu Margréti Láru besta leikmanninn

Fréttablaðið bað þjálfara Landsbankadeildar kvenna til þess að velja besta leikmann deildarinnar í sumar. Þrír leikmenn fengu atkvæði sem besti leikmaðurinn og fimm leikmenn fengu atkvæði sem sá efnilegasti. Rakel Hönnudóttir fékk flest atkvæði sem efnilegasti leikmaðurinn.

Valskonan Margrét Lára Viðarsdóttir er besti leikmaður Landsbankadeildar kvenna í sumar að mati níu þjálfara deildarinnar en Fréttablaðið fékk þá til þess að gefa sitt atkvæði alveg eins og leikmenn þeirra gerðu í umdeildu vali í tengslum við lokahóf KSÍ sem fram fór á föstudagskvöldið.

Fréttablaðið hafði samband við alla níu þjálfarana í Landsbankadeild kvenna í sumar og bað þá um að velja leikmann deildarinnar að sínu mati burtséð frá því með hvaða liði hann spilar.

Margrét Lára fékk atkvæði hjá fimm þjálfurum eða 56 prósent af þjálfurum deildarinnar. Hólmfríður Magnúsdóttir úr KR, sem var kosin best, fékk 3 atkvæði og félagi hennar í KR, Olga Færseth, fékk síðasta atkvæðið.
Margrét Lára átti frábært tímabil og var lykilmaðurinn á bak við að Valur vann Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð. Margrét Lára bætti ársgamalt markamet sitt um fjögur mörk og skoraði 38 mörk í aðeins 16 leikjum eða 2,4 mörk að meðaltali í leik.

Rakel Hönnudóttir hjá Þór/KA, sem var kosin efnilegust í lokahófinu, er einnig efnilegust að mati þjálfara deildarinnar en fjórir þeirra nefndu hana. Fjórir leikmenn fengu einnig atkvæði þar af fékk Breiðabliksstúlkan Hlín Gunnlaugsdóttir tvö atkvæði.

Það vakti athygli að Margrét Lára Viðarsdóttir fékk hér eitt atkvæði þrátt fyrir að hafa verið markakóngur deildarinnar fjögur ár í röð og búin að skora yfir 20 mörk fyrir íslenska A-landsliðið.

Rakel er vel að útnefningunni komin en hún skoraði 6 mörk í 16 leikjum í sumar og hjálpaði Akureyrarliðinu að halda sæti sínu í deildinni.

Nýjustu fréttir

Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Spurt og svarað: Erlingur frá Eyjalistanum
Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
40 ára aldursmunur á vinningshöfum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.