Heilbrigðisráðherra í heimsókn á Litla-Hrauni

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og Sveinn Magnússon skrifstofustjóri í heilbrigðis-ráðuneytinu heimsóttu Fangelsið Litla-Hrauni föstudaginn 25. apríl síðastliðinn. Þeir skoðuðu fangelsið en sérstök áhersla var lögð á að kynna starfsemi meðferðardeildar sem þar hefur verið rekin sem tilraunaverkefni til 6 mánaða. (meira…)

Guðbjörg Jónsdóttir er nýr formaður BSSL

Nýkjörin stjórn Búnaðarsambands Suðurlands fundaði f.h. í dag en sem kunnugt er voru þau Guðbjörg Jónsdóttir á Læk og Gunnar Kr. Eiríksson í Túnsbergi kjörin í stjórn á aðalfundi BSSL 18. apríl s.l. Á fundinum skipti stjórnin með sér verkum þannig að Guðbjörg Jónsdóttir er formaður, Egill Sigurðsson er varaformaður, Guðni Einarsson er ritari og […]

Sektaður fyrir landhelgisbrot

Skipstjórinn á norska línuveiðiskipinu Gayser Senior var í Héraðsdómi Suðurlands í dag sektaður um hálfa milljón króna fyrir landhelgisbrot. Afli og veiðarfæri að verðmæti um þrjá og hálf milljón króna voru auk þess gerð upptæk. Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar stóð skipið að ólöglegum veiðum út af Suðausturlandi í fyrradag og játaði skipstjórinn brotið í Vestmannaeyjum í […]

Stend með Árna

Hvurslags vitleysa er þetta eiginlega? Árni Johnsen fer hörðum orðum um embættismann sem honum fannst ekki vinna vinnuna sína og uppsker kæru fyrir. Alveg er ég viss um að ef einhver af hinum 62 sessunautum Árna á þingi hefði skrifað þessa grein væri ekki verið að tala um kæru. Og yfirlýsing embættismannsins er ekkert annað […]

Góð stemmning fyrir Eagles tónleikunum á morgun

Á morgun verða haldnir Eagles heiðurstónleikarnir í Höllinni en þá koma Eyjólfur Kristjánsson og félagar í heimsókn og flytja öll bestu lög sveitarinnar. Forsala miða hefur verið í skóverslun Axel Ó. en Björgvin Þór Rúnarsson, rekstraraðili Hallarinnar segir forsöluna hafa gengið mjög vel. „Það er búið að selja um 150 miða í forsölu þannig að […]

Umhverfisverðlaun Árborgar

Á Degi umhverfisins 25. apríl voru umhverfisverðlaun Árborgar afhend við stutta athöfn í Rauða húsinu á Eyrarbakka. Formaður umhverfisnefndar Jóhann Óli Hilmarsson afhendi verðlaunin. Eftirtaldir aðilar hlutu umhverfisverðlaunin 2008: (meira…)

Bílvelta, flugslysaæfing, 107 km hraði

Bílvelta, flugslysaæfing, bílvelta, 107 km hraði Í ýmsu var að snúast hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum þessa viku. Þar ber helst að um sl. helgi fór fram flugslysaæfing. Töluverður undirbúningur var fyrir hana. Lögreglumenn sátu hin ýmsu fræðsluerindi fyrir hana, þar var meðal annars fræðsla um fjarskipamál, greiningu slasaða o.fl. Samdóma álit er að æfingin hafi […]

�?fingaleikur: Selfoss og KR gerðu jafntefli

Selfoss og KR gerðu 2-2 jafntefli á gervigrasvellinum á Selfossi í gærkvöldi. Selfyssingar komust yfir í upphafi síðari hálfleiks þegar Sævar Þór Gíslason skoraði með fínum skalla en Gunnar Örn Jónsson og Guðmundur Pétursson breyttu stöðunni síðan í 2-1 fyrir KR. Ingólfur Þórarinsson jafnaði hins vegar 2-2 fyrir Selfyssinga og það urðu lokatölurnar. (meira…)

Engar líkur á að grjótnám mengi eða hafi áhrif á vatnslindir Eyjamanna

Í þeirri umræðu sem fram fer í bænum vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Landeyjahöfn, hefur vatnsveita Eyjamanna dregist inn í þá umræðu á ótrúlegan hátt. Að því tilefni vill Hitaveita Suðurnesja koma á framfæri eftirfarandi upplýsingum. Fyrirhuguð Landeyjahöfn er langt frá legu núverandi neðansjávarvatnslagna og lagnaleið nýju leiðslunnar sem lögð verður milli lands og Eyja í […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.