Sýningin “Konur á Listasafni Vestmannaeyja” er nú opin í Einarsstofu í Safnahúsi. Sýningin er hluti af afmælissýningaröð í tilefni af 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar.
Í tilefni af afmælinu er efnt til 10 sýninga á listaverkum eftir Eyjamenn og –konur á árinu. Með sýningaröðinni er ætlunin að draga fram þá fjölbreyttu flóru sem vestmannaeyskir listvinir eru. Sýningin er opin til 15. mars
Öll eiga verkin það sameiginlegt að vera í eigu Listasafns Vestmannaeyja sem geymir yfir 700 listaverk. Að þessu sinni sýnum við málverk eftir konur sem Listasafn Vestmannaeyja á aðeins eitt eða fáein verk eftir.
Verk eftirfarandi kvenna eru að þessu sinni dregin fram: Barbara Árnason, Halla Haralds, Helga Weishappel Foster, Jóhanna Erlendsdóttir, Júlíana Sveinsdóttir, Ria Oene, Sigrún Jónsdóttir, Steinunn Einarsdóttir og Þórdís Ásgeirsdóttir.
Í næstu viku verða dregin fram málverk eftir karla undir svipuðum formerkjum, segir í frétt á heimasíðu Safnahúss Vestmannaeyja.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst