Sýningin "Konur á Listasafni Vestmannaeyja" er nú opin í Einarsstofu

Sýningin “Konur á Listasafni Vestmannaeyja” er nú opin í Einarsstofu í Safnahúsi. Sýningin er hluti af afmælissýningaröð í tilefni af 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar.

Í tilefni af afmælinu er efnt til 10 sýninga á listaverkum eftir Eyjamenn og –konur á árinu. Með sýningaröðinni er ætlunin að draga fram þá fjölbreyttu flóru sem vestmannaeyskir listvinir eru. Sýningin er opin til 15. mars

Öll eiga verkin það sameiginlegt að vera í eigu Listasafns Vestmannaeyja sem geymir yfir 700 listaverk. Að þessu sinni sýnum við málverk eftir konur sem Listasafn Vestmannaeyja á aðeins eitt eða fáein verk eftir.

Verk eftirfarandi kvenna eru að þessu sinni dregin fram: Barbara Árnason, Halla Haralds, Helga Weishappel Foster, Jóhanna Erlendsdóttir, Júlíana Sveinsdóttir, Ria Oene, Sigrún Jónsdóttir, Steinunn Einarsdóttir og Þórdís Ásgeirsdóttir.

Í næstu viku verða dregin fram málverk eftir karla undir svipuðum formerkjum, segir í frétt á heimasíðu Safnahúss Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Selma rifjar upp árin með Gunnari á sjó og í landi 
Alls útskrifuðust 45 nemendur frá FÍV af sex brautum
Kraftmikil önn og árangur nemenda í forgrunni
Halli Geir Evrópumeistari í sjómanni  
Sjórinn var aldrei í plönunum, segir Sigurhanna
Sjómannadags fjör í Höllinni: myndasyrpa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.