Skiptar skoðanir í bæjarstjórn um breytingar á Landakirkju
�??Í seinustu viku kynnti sóknarnefnd þessar hugmyndir sínar fyrir bæjaryfirvöldum og var fjallað um málið á fundi umhverfis og skipulagsráðs á miðvikudaginn fyrir páska. Við skyldum málið þannig að um væri að ræða almennar vangaveltur og í ljósi þess að Landakirkja er eitt af helstu kennileitum sveitarfélagsins áttum við ekki von á því að málið yrði unnið með þeim hraða sem nú er að koma í ljós,�?? sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri þegar ákvörðun sóknarnefndar um breytingarnar á Landakirkju var borin undir hann.
�??�?g hafði því miður ekki tök á að sitja þennan umrædda fund og þekki málið því ekki vel. �?g viðurkenni þó að í fyrstu var mér nokkuð brugðið og ræddi því málið meðal annars við Sigrúnu Ingu formann sóknarnefndar og séra Guðmund �?rn. �?au buðu mér ásamt öðrum bæjarfulltrúum upp í safnaðarheimili núna í morgun þar sem við höfðum tök á að ræða fyrirliggjandi teikningar og eftir það er mér nokkuð létt og ræður þar ekki minnstu að núverandi turn er illa farinn og með þessu eykst þjónusta við td. fatlaða mikið. �?g dreg þó ekki fjöður yfir það að meðal bæjarfulltrúa eru afar skiptar skoðanir um þetta mál, sjálfsagt eins og með bæjarbúa almennt. Við höfum þó ekkert boðvald hvað þetta varðar og munum eingöngu fjalla um málið út frá almennum skipulagsreglum og fordæmum,�?? sagði Elliði.

Nýjustu fréttir

Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust
Tæplega hundrað nýta gjaldfrjálsa leikskólatíma
Rafmagnslaust: Stór truflun í kerfinu – uppfært
Annríki hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja í fárviðri
Hjalti læknir og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Stormur á Stórhöfða
Sterkt samfélag byggir á trausti og samvinnu
Mikilvægasta skipið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.