Mikilvægasta skipið
eythor_h_cr
Eyþór Harðarson

Aðsend grein

Eyþór Harðarson

Íbúar í Vestmannaeyjum hafa löngum fylgst með fiskiskipaflotanum, af gangi veiða og vinnslu. Þegar ég var yngri sögðust margir þekkja skipin eftir möstrum sem birtust við sjóndeildarhringinn. Tímarnir hafa breyst í þessum efnum og einfalt að sjá í símanum hvaða skip eru hvar. En stærsta breytingin er í mínum huga að nær allir Eyjamenn fylgjast með einu skipi og það er ekki fiskiskip. Það er dýpkunarskip.

Það er ekki tilviljun. Af störfum þess skips ræðst hvert Herjólfur siglir, hvort fólk kemst til og frá Eyjum, hvort samfélagið okkar gengur eðlilega eða situr eftir í óvissu. Fyrir eyjasamfélag snúast samgöngur ekki um þægindi – þær snúast um lífsskilyrði.

Samgöngur ráða úrslitum

Þegar horft er til kjörtímabilsins sem nú er að ljúka má sjá að mörg mál hafa verið til umfjöllunar. Engu að síður er ljóst að samgöngumálin, og þar sérstaklega Landeyjahöfn, hafa vegið þyngst. Það sést skýrt í fundargerðum bæjarráðs og bæjarstjórnar þar sem málið kemur sífellt aftur á dagskrá.

Ástæða þess er einföld, höfnin hefur ekki staðist þær væntingar sem gerðar voru til hennar og dýpkunarframvæmdir alls ekki gengið á þann hátt sem við hefðum viljað sjá. Óvissa um siglingar hefur verið of mikil og afleiðingarnar bitnað á heimilum og atvinnulífi. Þetta er staða sem ekki er hægt að sætta sig við.

Lykilatriði í baráttu bæjaryfirvalda fyrir úrbótum, hvað varðar dýpkunarframkvæmdir, var að hafa áhrif á kröfur sem gerðar voru við útboð á dýpkun Landeyjahafnar. Þar hafði fjárhagsþáttur vegið of þungt á kostnað tæknilegrar getu. Bæjarráð lagði ríka áherslu á að breyta því, þannig að reynsla og afkastageta yrðu ráðandi. Þetta var mikilvæg afstaða – að árangur skipti meira máli en lægsta tilboð. Fylgir hér texti úr fundargerð bæjarráðs þann 12.nóvember 2025.

”Í nýju útboði fyrir dýpkun sem nú er í undirbúningi, þarf að tryggja við mat á útboði að fjárhagslegt vægi sé hámark 60% og tæknileg geta 40% að lágmarki í stað þess sem nú er, þar sem tæknileg geta er bara 25% en fjárhagslegi þátturinn 75%. Bæjarráð skorar á ráðherra og þingmenn suðurkjördæmis að tryggja fjármagn til að breyta forsendum á mati til að auka líkur á að fleiri aðilar geti boðið í verkið.”

Árangur kemur ekki af sjálfum sér

Nýleg ákvörðun Vegagerðarinnar um að semja við belgíska dýpkunarfyrirtækið Jan De Nul fyrir árin 2026–2029 er ekki tilviljun. Hún er afleiðing stöðugs þrýstings, skýrra raka og óþreytandi hagsmunagæslu okkar bæjarfulltrúa. Vegna þrýstings frá okkur var tæknileg geta nú látin vega mun þyngra við mat tilboða en áður, sem vonandi skilar sér í öflugri dýpkun, fjölgun siglingardaga, meiri áreiðanleika og minna raski á daglegu lífi okkar Eyjamanna.

Það eru raunverulega aukin lífsgæði fyrir Eyjamenn þegar Landeyjahöfn virkar og það er ánægjulegt að sjá að sífelld og öflug hagsmunagæsla og samstaða okkar bæjarfulltrúa skilaði sér, þegar Vegagerðin ákvað að semja um dýpkunina við Jan De Nul.

Barátta bæjaryfirvalda fyrir öflugri dýpkun Landeyjahafnar er bara eitt af mörgum hagsmunamálum sem bæjarstjórn hefur unnið að en mörg önnur stór og mikilvæg hagsmunamál, sem skipta Vestmannaeyjar miklu, eru og hafa verið á okkar borði og þeim þarf áfram að fylgja eftir af festu.

 

Eyþór Harðarson, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins.

Nýjustu fréttir

Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.